Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Mig langar að taka þátt í þessari umræðu, sem er búin að vera afskaplega áhugaverð í dag, því að leiðin liggur brátt hjá mér og fleirum til Genfar og Strassborgar í næstu viku þar sem ég veit að þessi mál verða rædd fram og til baka.
Það er sannarlega óhætt að segja, eins og margsinnis hefur komið fram hjá öðrum í dag, að við lifum um margt fordómalausa tíma í alþjóðamálum í dag. Það er erfitt að hafa áhrif á hvernig fólk hagar sér, kemur fram og segir. En hvernig við bregðumst við er hins vegar í höndum hvers og eins.
Þetta ár byrjaði með látum á alþjóðasviðinu, látum sem vekja með mörgum ugg og áhyggjur. Bandaríkjaforseti hefur haldið heimsbyggðinni á tánum og maður spyr sig nánast daglega: Hvað næst? Hvað ber þessi dagur í skauti sér á vettvangi alþjóðamála. Nú síðast í Davos nefndi forsetinn Ísland, hvort sem það var fyrir mismæli eða ekki. Hann nefndi ítrekað nafn okkar góða lands. En það hljómaði ekki aldeilis ekki vel í okkar eyrum.
Hugsunin leitar til minni og meðalstórra þjóða í þessum ólgusjó. Hvað gera þær í þessum stormi og sviptivindum? Um þetta spyrja margir. Það blasir við að að Evrópa þétti raðirnar og ríki álfunnar standi keik saman, laus við ótta og meðvirkni. Íslendingar þurfa að fjölga samtölum kannski enn þá meira við leiðtoga Evrópuríkja og alþjóðasamtaka eins og ríkisstjórnin hefur gert með samtölum við þá sem fara fremst á vettvangi alþjóðamála. Krafa valdamikils leiðtoga eins og forseta Bandaríkjanna um yfirráð yfir annarri þjóð er auðvitað þessleg að fólk setur hljótt. Flestum finnst ótrúlegt að einn helsti leiðtogi hins vestræna heims, þar sem lýðræði og virðing fyrir sjálfsákvörðunarrétti þjóða hefur verið höfð í heiðri, tali með þessum hætti. Hann sagði þó blessunarlega í gær að hann muni ekki beita hervaldi til að ná yfirráðum yfir Grænlandi, þótt hann heiti því enn að gleyma aldrei þeim þjóðum sem neita að færa honum Grænland á silfurfati. Það er sannarlega ógnartónn í þessum orðum. Orðræða forseta Bandaríkjanna hefur aukið á óreiðu og óvissu og þar af leiðandi dregið úr öryggi vestrænna þjóða.
Hingað til hafa íslensk stjórnvöld brugðist hárrétt við stöðu mála; ítrekað mikilvægi virðingar fyrir alþjóðalögum og rétti þjóða og lýst stuðningi við Grænlendinga og Dani. Spurningin um hvað gerist næst brennur samt enn á vörum flestra. Virðing fyrir alþjóðalögum, mannréttindum, velferð almennings eiga að vera leiðarljós okkar. En þessi hugtök eru einfaldlega ekki til í orðabók allra eins og sést hefur. Bandaríkin sem hafa í áratugi verið okkar helsta bandalagsþjóð beita nú tollum á helstu bandalagsþjóðir til að ná sínu fram og þeir ná einnig til Íslands. Þetta kallar á að Íslendingar þétti raðirnar með öðrum bandalagsríkjum til að tryggja áframhaldandi hagsæld þjóðarinnar.
Fámenn þjóð eins og Íslendingar stendur að sjálfsögðu með Grænlendingum þegar fullveldi þeirra er ógnað eða dregið í efa. Það veit ég að við öll sem eitt gerum hér á Alþingi. Við hljótum að standa með öllum þjóðum sem stórveldi vilja innlima hvort heldur með hervaldi eða kaupum. Eins og við höfum staðið með Úkraínu gegn ólöglegri innrás Rússa sem hefur kallað hörmungar yfir úkraínsku þjóðina í bráðum fjögur ár. Íslendingar hljóta alltaf að að gagnrýna augljós brot á alþjóðalögum og tala skýrt fyrir friði og mannréttindum .
Þegar forseti Bandaríkjanna ásælist nágrannaþjóð okkar og bandalagsríki í Atlantshafsbandalaginu er ekki hægt að hunsa knýjandi spurningar um öryggi og stöðu Íslands. Það er eðlilegt að velta fyrir sér gildi varnarsamninga og horfast í augu við að þeir sem við töldum óbilandi vini okkar eru það kannski ekki lengur. Á þetta hefur sem betur fer ekki reynt enn og vonandi kemur ekki til þess.
Í ályktun stjórnar Evrópuhreyfingarinnar segir að vegna stigmögnunar í tengslum við Grænland hafi aldrei verið jafn brýnt og nú að Ísland taki afdráttarlausa afstöðu til eigin öryggis og framtíðar. Þegar stjórnvöld í Bandaríkjunum ógna nágrönnum okkar á Grænlandi og lýsa yfir ásetningi um að sölsa undir sig landsvæði í aðeins um 290 kílómetra fjarlægð frá Íslandi blasir við nýr veruleiki. Veruleiki þar sem valdbeiting og yfirgangur stórvelda í okkar næsta nágrenni er ekki lengur fræðileg heldur raunveruleg ógn. Þótt forseti Bandaríkjanna hafi aðeins dregið í land varðandi Grænland í Davos í gær er þessu ástandi og umræðu um það hvergi nærri lokið. Utanríkismálin eru í góðum höndum hjá ráðherra málaflokksins, forsætisráðherra og utanríkismálanefnd. Ég vil undirstrika mikilvægi þess að Íslendingar vinni þétt með öðrum Evrópuríkjum í mótun viðbragða og stefnumótun til framtíðar. Ekki hvað síst er mikilvægt fyrir okkur að eiga gott samstarf með öðrum fámennum og meðalstórum ríkjum. Það er mikilvægt á þessum ólgutímum þegar sáttmáli vestrænna ríkja um skipan heimsmála hefur í raun rofnað, eins og forsætisráðherra Kanada orðaði það á alþjóðafjármálaráðstefnunni í Davos. Íslendingar verða að sýna fyrirhyggjusemi til að tryggja að við lendum réttum megin í sögunni.
Mig langar aðeins að nefna, af því að ég á eftir þrjár mínútur, að við erum ekki bara að hugsa um heildina og land og þjóð. Hér eru auðvitað fjölmargir sem hafa dvalið til lengri og skemmri tíma í Bandaríkjunum. Við sem höfum verið það, þar á meðal ég, bjó þar í fimm ár einu sinni í gamla daga, eigum auðvitað vini bæði þar og hér sem hafa búið þarna úti. Mér skilst að breytingin fyrir þá Íslendinga sem búa og starfa í Bandaríkjunum sé nú þegar gríðarleg. Ég vil bara rifja upp viðtal við konu í þessari viku á Rás 1, held ég, sem hefur búið í einu af þessum friðsælu og afskaplega notalegu ríkjum í Bandaríkjunum. Hún lýsti því hversu hrædd hún og hennar fjölskylda væru orðin. Mér verður oft hugsað til fólksins í Bandaríkjunum, hversu miklar breytingar þetta eru líka fyrir það fólk sem hefur gengið að ákveðnum hlutum vísum, en það er ekki lengur. Það eru ekki bara allir fyrir utan Bandaríkin heldur jafnvel líka þeir sem búa í þessari stóru álfu sem upplifa mjög miklar breytingar í sínu heimalandi.
Ég er bjartsýn á að þetta muni allt saman einhvern veginn fara og auðvitað var okkur eins og mörgum létt þegar við alla vega heyrðum það frá forseta Bandaríkjanna að hann ætli ekki að fara með hervaldi inn í Grænland. Það var verulega óhugguleg tilhugsun og þetta lá í loftinu í nokkurn tíma. En síðan vitum við bara að þetta er ekki búið fyrr en það er búið, hvenær svo sem verður búið. En hugsunin er einfaldlega sú að við stýrum ekki öðru fólki, stýrum þessum einstaklingi ekki frekar en nokkrum öðrum. En við getum alltaf skoðað okkar eigin viðbrögð og ég myndi halda að farsælast fyrir okkur sé að vinna saman að því hvernig við viljum bregðast við, eins og ég held að við séum að gera. En þá þýðir það líka að við þurfum að standa saman hér í þessu húsi. Mér finnst að svona fram til þessa, fyrir utan kannski þessa Evrópusambandsumræðu sem er búin að vera ansi viðamikil í dag og frek á tíma, séum við fyrst og fremst að hugsa núna: Hvernig ætlum við að bregðast við, hvað á að gera frá degi til dags í þessum málum? Mér þótti gott að heyra það hér hjá öllum, ég held hjá hverjum einasta sem kom hér upp í dag, að þau styddu Grænland og myndu auðvitað alltaf gera og allar aðrar þjóðir, stórar og smáar, þar sem er einhver hótun um að vera innlimuð af einhverju stórveldi. Ég held að við séum saman í þessu og ég efast ekkert um það. Þetta er svona eins og í faraldri, ef það kæmi faraldur, þá stöndum við öll saman.
Hvað það verður síðan með seinni tíma málið, með Evrópusambandið, á eftir að koma í ljós. Mér finnst það hafa legið skýrt fyrir frá því að þessi ríkisstjórn var mynduð. Það verða þessar kosningar, þjóðin verður spurð, og bara afskaplega gott og skynsamlegt að bíða eftir hvað kemur út úr því. En það er kannski fyrst þá sem umræðan um Evrópusambandið ætti að fara á flug en fram að þessum kosningum þá vitum við ekki hver útkoman verður og getum því kannski ekkert endilega spáð svo nákvæmlega í þau spil.