157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu þar sem hún fór yfir ýmis mál sem eru lítið rædd hérna í dag af ástæðum sem hv. þingmaður vísaði í lokin. Því miður hefur þessi umræða ekki farið í það sem maður var að vonast til þess að hún færi; hvað við værum sammála um og hvernig við myndum bregðast við þeim hlutum sem hv. þingmaður benti réttilega á. Hér er breytt heimsmynd. Hlutirnir breytast mjög hratt og það er gríðarlega mikilvægt, nú sem aldrei fyrr, að gæta íslenskra hagsmuna og það þarf að gera á mörgum sviðum.

Í þessu stutta andsvari ætla ég að spyrja hv. þingmann vegna þess að hv. þingmaður er einn forystumanna í Flokki fólksins sem hefur alltaf verið mjög skýr í sinni stefnu þegar kemur að utanríkismálum og Evrópusambandinu. Eins og við vitum þá gengur Evrópusambandið út á það að við ætlum að flytja völd sem við höfum, sem lengi var barist fyrir, yfir til Brussel og við munum aldrei fá þau aftur. Við ætlum að flytja fjármuni sem íslenskir skattgreiðendur eiga og við ætlum að færa þá til Brussel. Núna hefur komið í ljós í dag, og er það sem við tökum úr deginum, að alveg blygðunarlaust koma hér hv. þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar og eru búnir að taka af sér allar grímur í þessu. Það er engin gríma lengur. Forsætisráðherra sagði ákveðna hluti fyrir kosningar, í kosningabaráttuni, sem mæltust þannig fyrir hjá fólki að hennar flokkur hækkaði mjög í skoðanakönnunum og varð örugglega þess valdandi, vegna þess að það var enginn flokkur sem setti málið á dagskrá, að Evrópumálin voru ekki neitt rædd.

Flokkur fólksins var alltaf mjög skýr með að Ísland ætti ekki að ganga í Evrópusambandið. Ég hlýt að spyrja, virðulegur forseti, þar sem Flokkur fólksins er í þessu ríkisstjórnarsamstarfi, hvort afstaðan hafi breyst. Auðvitað erum við að fara í þessa atkvæðagreiðslu til að reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið. Menn eru væntanlega ekki að gera þetta vegna þess að þeir hafi ekki neitt annað að gera.