Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir andsvar og fagna því bara. Ég hélt ég væri með svo milda og ljúfa ræðu að það myndi ekki kveikja í neinum hérna í salnum. Ég skil vel spurninguna. Þá langar mig áður en ég svara — án þess að ég ætli kannski að svara já eða nei, þetta er ekki alveg svo einfalt — að minnast þess að ég hef einu sinni verið í öðrum stjórnmálaflokki, reyndar fyrir margt löngu síðan, með hv. þingmanni, ef ég man rétt. Þá var auðvitað þessi umræða um Evrópusambandið náttúrlega á allt öðru plani en þó komin inn. Ég man ekki betur en að það væri dálítill tónn í þá átt að það væri mögulega góður kostur að skoða Evrópusambandsaðild. Mig kann að misminna en ég man þó aldrei eftir að hafa heyrt á neinum fundum eða í neinni orðræðu í þeim ágæta flokki að þar væru miklir andstæðingar. Við vorum öll sátt við EES-samninginn og klárlega þótti mörgum um borð í þessum flokki á þessum tíma það vera hugsanlega framhaldið. Hv. þingmaður mun leiðrétta mig hér á eftir ef þetta er kannski einhver draumur sem ég var að lýsa hérna.
Flokkur fólksins hefur verið mjög skýr með sína afstöðu og stjórn flokksins og formaðurinn. En svo vitum við það hvernig það er í flokkum að auðvitað eru ekki allir endilega með sömu skoðun á öllu. Ég get ekki talað fyrir alla í Flokki fólksins en stefnan hefur klárlega verið að ganga ekki í Evrópusambandið. Síðan þegar þrír flokkar mynda með sér samsteypu til að stjórna landi þurfa allir að gefa eitthvað eftir hvað varðar orðræðuna þó að þeir haldi áfram að vera með sínar hugmyndir og skoðanir. — Ég fæ kannski að halda áfram í næsta andsvari.