157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:28]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir hennar andsvar. Jú, við vorum í þessari heimsókn, bara svo ég afgreiði það strax meðan ég man. Það er einfaldlega þannig að við erum í ótrúlega frábæru og mikilvægu samstarfi við Europol og erum þar virkilega með og ekki bara þiggjendur. Við erum líka að veita mikilvægar upplýsingar sem hafa leitt til þess að mál hafa leyst. Við höfum þó ekki fullan aðgang að gagnagrunni Europol af því að við erum ekki ríki í sambandinu, það er bara þannig, og þannig er þetta með fjölmargt. Við erum með EES-samninginn sem nær mjög langt og er algjörlega frábær og erum öll sammála um það en síðan eru þarna hlutir sem eru bara eins og gengur og gerist; ef þú ert ekki aðili hefurðu ekki aðgang þótt sumu væri auðvitað voða gaman að hafa aðgang að. Það er alveg rétt og myndi hjálpa en svona er bara lífið. Þú getur ekki haft allt ef þú ert ekki þar sem þú þarft að vera til að fá það. Þetta er ekki flókið fyrir mér. Kannski er þetta bara spurning um karakter og persónuleikaeinkenni. Ég hef alltaf verið mjög forvitin manneskja og ég vil alltaf sjá allt til enda. Ég er manneskja sem segi nánast ekki nei við neinu svo framarlega sem ég held að ég geti mögulega fengið að sjá eitthvað nýtt og spennandi og lært eitthvað. Ég hef aldrei verið þannig, held ég, gagnvart neinu sérstöku, að ég hafni hlutum bara gjörsamlega strax og þverskorið. Það bara er ekki þannig. Nú er komin upp staða sem mér finnst bara rosalega fýsileg og það er að spyrja þjóðina. Það gæti ekki verið betri kostur, þegar fólk er að þrátta um hvað sé betra að gera fyrir þjóðina, heldur en bara hreinlega að spyrja fólkið og leyfa því með lýðræðislegum hætti bara að koma og segja hvað : Hvað finnst ykkur? Með öllu því sem því tilheyrir. Það verða auðvitað alls konar hópar sem munu vera með og á móti og fræðsla hingað og þangað og það er bara skemmtilegt. Fyrst og fremst er alltaf gaman að kosningum þannig að ég held að við í Flokki fólksins séum bara mjög sátt (Forseti hringir.) við þessa aðferðafræði, að byrja þarna. Síðan tökum við slaginn (Forseti hringir.) og þá verður fyrst fjör í þessu.