Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Þetta var frétt sem kom fram hjá hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur og þetta eru, held ég, miklar fréttir fyrir kjósendur Flokks fólksins. Nú er svo komið að hv. þingmaður treystir sér ekki til að svara því með afgerandi hætti hvort hún sé fylgjandi því að Ísland gangi í Evrópusambandið eða ekki. Það gat ekki verið skýrara. Það er áhugavert fyrir kjósendur Flokks fólksins að heyra það. Það kæmi verulega á óvart ef einhver hefði kosið Flokk fólksins til þess að Ísland færi í Evrópusambandið. Og af því að hv. þingmaður spurði mig í seinna svari sínu, og þar af leiðandi gat ég ekki komið aftur en get gert það núna, hvað myndi gerast ef Bandaríkjamenn vildu taka Ísland, hvort þá væri ekki gott að vera í Evrópusambandinu: Evrópusambandið mun ekki stoppa það. Að vísu er náttúrlega fráleitt að ræða þessa hluti með þessum hætti en maður átti aldrei von á því að þessi atburðarás varðandi Grænland, sem því miður er ekki lokið, myndi fara á þennan stað. Þannig að ég er ekki að gera athugasemdir við það að menn velti því upp.
Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson fór ágætlega yfir þetta áðan og benti á staðreyndir. Þegar kemur að NATO er framlag Bandaríkjanna 55–60% og Bretlands 10%. Hin sjö ríkin sem eru fyrir utan Evrópusambandið eru með 15% en Evrópusambandið er með 20%. Evrópusambandið er ekki að fara að verja neinn. Mér þótti miður að hlusta hér á hv. þm. Pawel Bartoszek vera með útúrsnúninga þegar hann vísaði til þess og lét að því liggja að Evrópusambandið gæti varið sig sjálft, þegar hann vísaði í ummæli bandarískra forystumanna þar sem þeir sögðu að Evrópa hefði alveg efnahagslegan styrk til að verja sig sjálf en þeir hafa ekki notað þann efnahagslega styrk til að byggja upp sínar varnir. Ég þekki þetta bara algerlega prýðilega því að þegar ég var í stóli utanríkisráðherra var þessi umræða tekin á vettvangi NATO. Þá börðust lönd Evrópusambandsins, sérstaklega stærstu ríkin, gegn því að efla sínar varnir í samræmi við það sem miðað var við á vettvangi bandalagsins. Það er alvarlegt, virðulegur forseti, þegar ESB-sinnar — af því að nú eru menn búnir að kasta grímunni, hæstv. forsætisráðherra er búin að kasta grímunni. Hún ætlar og er búin að svíkja kosningaloforðið sem hún var með, að kljúfa ekki þjóðina með þetta mál, þegar menn eru að reyna að halda því fram að það sé eitthvert varnar- og öryggisskjól í Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Hér eru alvarlegir hlutir á ferðinni. Það er alvarlegt þegar forystumenn þjóðarinnar eru að blekkja þjóðina með þessum hætti, því þetta eru blekkingar. Ef við förum í söguna er núverandi Bandaríkjaforseti ekki eini forsetinn sem hefur kvartað yfir því að Evrópuþjóðir hafi ekki staðið við sínar skuldbindingar í NATO. Það hafa allir forsetar gert, í það minnsta frá George Bush eldri; Obama, Clinton, Biden, Bush yngri og eldri. Það er ótrúlega mikil örvænting hjá hv. ESB-sinnum á Alþingi Íslendinga að reyna að tala með þessum hætti.
Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, að hæstv. utanríkisráðherra svaraði engu um samningsstöðu Íslands, svokallaða samningsstöðu Íslands. Af því að hv. þm. Pawel Bartoszek telur að ég sé einhvern veginn að hæða hann þegar ég hrósa honum en það er ekki þannig. Ég hef einlæglega hrósað hv. þingmanni vegna þess að mér hefur ekki fundist hann stíga í þá gryfju að vera með blekkingar eða hálfsannleik þegar verið er að tala um þessa hluti en því miður olli hann gríðarlegum vonbrigðum hér í dag.
Hv. þm. Pawel Bartoszek hefur sagt skýrt hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Hann gerði það á árum áður. Og að láta að því liggja að sú undanþága sem Danir fengu þegar menn voru að uppfæra sáttmálann, hvort það var Maastricht eða Lissabon eða hvað það nú var, og þeir notuðu þá tækifærið og sögðu: Ókei, við erum með en við þurfum að hafa ákveðna undanþágu varðandi sumarhúsin — eins og maður geti fengið undanþágu við það að sækja um. Það er alrangt. Bæði dæmið með Möltu og norræna landbúnaðinn gengur út á að löndin verða að ganga inn í sameiginlegu landbúnaðar- og sjávarútvegsstefnuna. Það er alveg skýrt. Þau geta hugsanlega, ef allar þjóðirnar samþykkja það, gert einhverjar lítilvægar breytingar en síðan er valdið í Brussel. Valdið færi úr Reykjavík til Brussel. Um það snýst málið.
Það er með ólíkindum hvað íslenskir stjórnmálamenn og stjórnmálaskýrendur hafa komist langt með að upplýsa ekki um þessa hluti. Allir sem hafa kynnt sér þetta hafa komist að augljósri niðurstöðu, enda er þetta ekkert leyndarmál fyrir utan Ísland. Þetta er ekkert leyndarmál fyrir utan Ísland. Ég hvet alla hv. þingmenn sem eru í alþjóðlegu samstarfi að reyna að útskýra það fyrir útlendingum að umræðan á Íslandi sé sú að ef við myndum sækja um aðild að Evrópusambandinu þá gætum við eitthvað samið um það — eins og Evrópusambandið segi bara: Já, Ísland er að koma. Við verðum að standa okkur vel í samningunum. Ísland er að koma og við bara þurfum að breyta öllu.
Ef menn myndu breyta stofnsamningunum eða samkomulögunum sem þeir eru búnir að gera þá þarf það að fara í gegnum öll þjóðþingin. Halda menn virkilega að þegar þjóðir miklu stærri en við þurftu að undirgangast þessa hluti geti Ísland bara sest niður og sagt: Nú bara setjum við allt á annan endann af því að við erum með aðrar hugmyndir um Evrópusambandið heldur en Evrópusambandið er með. Þetta er fráleitt, virðulegur forseti.
Hv. þm. Pawel Bartoszek kom með mjög nýstárlega hugmynd um að við værum ekki að ganga úr EES ef við gengjum í ESB. Þá værum við bara að gifta okkur kærustunni. Þetta er auðvitað ekki boðlegur málflutningur, virðulegur forseti. Þegar stofnað var til EES þá voru miklu fleiri ríki í því. Þau tóku þátt í stofnunum okkar, ESA og öðru slíku. Þau eru ekki þar lengur. Það var kosið um það og þar komu fram stjórnmálamenn sem sögðu: Það er betra fyrir okkur að vera í ESB heldur en EES. Um það var kosið. Í mörgum ríkjum sögðu menn: Jú, við skulum fara í ESB. Allt í góðu með það, eða ekki, en þeir myndu ekki gera það núna.
Varðandi það að þetta kljúfi ekki þjóðina þá hvet ég hv. þingmenn til að tala við vini okkar, Norðmenn. Reyndar deildu menn í Bretlandi um Evrópusambandið í áratugi. Við erum búin að sjá í löndum þar sem maður hélt að maður myndi aldrei af sögulegum ástæðum sjá deilur um Evrópusambandið sjá miklar deilur um það og það mun ekki breytast í nálægri framtíð.
Virðulegi forseti. Málið er þannig komið að helsta gagnrýnin á Evrópusambandið kemur loksins frá Evrópusambandinu sjálfu, eins og Draghi-skýrslan sem ég vona að við fáum að ræða hér fyrr en seinna. Pawel Bartoszek kom inn á að við þyrftum að ganga í Evrópusambandið af því að allt í einu væri orðið svo gott að fara í tollabandalag. Höfum það á hreinu að ef við færum í tollabandalag við Evrópusambandið þá myndu hækka hér tollar á ýmsum vörum vegna þess að við erum með lægri tolla á flestum vörum heldur en Evrópusambandið því að þeir hafa verið með verndarstefnu og eru mjög harðir í sinni verndarstefnu.
Að það myndi einhvern veginn bjarga okkur, virðulegi forseti — þetta er ótrúlega vont dæmi. Maður myndi nú ætla að volduga Evrópusambandið hefði getað staðið uppi í hárinu á Bandaríkjunum þegar Trump forseti sagði: Ég ætla að setja tolla á ykkur. Það var nú aldeilis ekki. Evrópusambandið veifaði bara hvítu flaggi. Það bara gekk að öllu því sem Bandaríkjamenn sögðu og hefur ekki neina stöðu og hefur reyndar bent á að þau séu ekki bara að verða eftirbátar Bandaríkjamanna heldur líka Kínverja.
Virðulegi forseti. Þetta er stutt umræða. Ég vil hrósa hæstv. utanríkisráðherra, ég ætla að gera það, fyrir að nýta sér veru okkar í mannréttindaráðinu til að að vekja athygli á mannréttindabrotunum í Íran. Það er vel.
Ég hélt, virðulegur forseti, að ég ætlaði að ræða hér önnur mál en því miður er ríkisstjórnin búin að kasta grímunni. Forystumenn ríkisstjórnarinnar köstuðu grímunni. Við erum að horfa á að í stað þess að ríkisstjórnin sé að einbeita sér að hagsmunum Íslands og þeim ógnum sem að því steðja og þeim tækifærum sem eru þar líka þá er bara eitt (Forseti hringir.) sem þessi hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera með öllum ráðum og það er að koma Íslandi inn í (Forseti hringir.) Evrópusambandið. En það verður ekki gert án þess að það verði tekið á móti og guð gefi að það verði aldrei. (DME: Heyr, heyr.)