157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:50]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgott svar. Já, það var sorglegt að verða vitni að dylgjum hæstv. utanríkisráðherra í garð minni hlutans og kannski sérstaklega í garð Miðflokksins með þeim yfirlýsingum að segja að hér væru þingmenn sem styddu ekki Grænland og Grænlendinga. Þvílík fásinna — og kemur síðan ekki upp og biðst afsökunar á ummælum sínum. Það er náttúrlega með ólíkindum og þarfnast kannski bara sérstakrar umræðu. Það er alveg ömurlegt að verða vitni að slíku.

Mig langar í seinna andsvari að ræða aðeins við þingmanninn um áætlun Evrópusambandsins um að hafa pólitísk afskipti af innanlandsmálum hérna á Íslandi og vísa til skýrslu sem, að mig minnir, utanríkismálnefnd Evrópuþingsins samþykkti og Evrópuþingið hefur síðan samþykkt þar sem vísað er til þess að Evrópusambandið hyggist hafa hér pólitísk afskipti af komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og ég segi, um aðlögunarviðræðurnar að Evrópusambandinu í samvinnu við ríkisstjórn Íslands. Ég spurði utanríkisráðherra í fyrirspurnatíma í þinginu fyrir jól hvort samtöl hefðu átt sér stað um þetta og hvort þetta væri í skýrslunni með hennar samþykki og að öðrum kosti hvort hún hygðist ekki gera athugasemdir við slíka íhlutun af hálfu ESB. Það er nú bara þannig að við höfum talað gegn slíku alls staðar, íhlutun í innanríkismál ríkja. Þetta eru bara diplómatísk prinsipp sem allir eiga að virða. Hæstv. utanríkisráðherra bar þetta ekki til baka og brást ókvæða við með dylgjum og tárvotum augum en svaraði engu. Þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af þessari fyrirætlan Evrópusambandsins í samvinnu við ríkisstjórn Íslands.