Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú að byrja á að segja að ég fagna því mjög að við séum að ræða hér um alþjóðamál, hef kallað ítrekað eftir því, þannig að ég vildi hrósa hæstv. utanríkisráðherra fyrir að flytja þessa munnlegu skýrslu og forseta fyrir að opna á þessa umræðu. Ég átta mig á því að hæstv. utanríkisráðherra er farin enda þurfti hún að fljúga erlendis og sinna mikilvægum verkefnum.
Ég ætla líka að fá að segja það, virðulegur forseti, að fyrir mig, svona frjálslyndan hægri mann, er alveg svolítið skrýtið að tala um alþjóðamál í dag. Heimsskipanin er breytt. Sú sem hér stendur hefur verið talsmaður alþjóðaviðskipta og alþjóðasamstarfs. — Kæru þingmenn, ég veit að það er margt að ræða en það væri rosa gaman að fá samt bara — takk fyrir. Hvar var ég? (GÞÞ: Ég var að trufla þig.) Já, takk, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrir að trufla mig. Ég var einmitt að tala um alþjóðaviðskipti og mikilvægi þeirra og að sú sem hér stendur hefur mikla trú á slíku. Það er auðvitað skrýtin heimsmynd þegar ríkin báðum megin við okkur hóta að beita tollum. Bandaríkin hafa gert það og hafa verið með frekari hótanir ef við styðjum Grænland og annað, reyndar hefur forsetinn fallið frá því, guði sé lof fyrir það. En svo líka aðilarnir sem við höfum unnið með í Evrópu — við erum hluti af Evrópska efnahagssvæðinu, þar eiga allar iðnaðarvörur undir en samt sem áður eru þeir aðilar að ákveða að setja á okkur toll. Í mínum huga er þetta bæði algerlega óásættanlegt og ekki sú heimsmynd sem ég myndi vilja sjá.
Virðulegur forseti. Af því að tíminn er stuttur þá ætla ég að reyna að ræða svolítið um norðurslóðamál og öryggi á norðurslóðum. Frá því að ég tók sæti á þingi hef ég dregist einhvern veginn inn í þennan heim, fyrst sem fulltrúi í Vestnorræna ráðinu og svo sitjandi í utanríkismálanefnd og fékk þann heiður að leiða þverpólitíska nefnd um stefnu okkar í norðurslóðamálum þegar þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, skipaði mig í það. Á þessum árum var mikil gróska og mikil umræða um norðurslóðamál á þingi og hjá íslenskum þingmönnum. Það var skrifuð skýrsla um Grænland, skrifuð skýrsla um Færeyjar, skrifuð skýrsla um viðskiptahagsmuni og tækifæri á norðurslóðum. Allt voru þetta mjög mikilvæg og góð skref og ég hygg að í þessum skýrslum sé að finna góðar hugmyndir sem ég held að við ættum að hrista aðeins rykið af.
Á þessum tíma var það líka svo að við vorum svolítið mikið að reyna að vekja Bandaríkin upp til vitneskju um að þau væru raunverulega norðurslóðaríki, ættu hagsmuna að gæta og þyrftu að vera þátttakendur í því. Ég minnist þess að bandaríski herinn kom með flugmóðurskip hér í Norður-Atlantshaf og okkur sem fulltrúum í utanríkismálanefnd ásamt þáverandi ráðherra og fleirum var boðið að heimsækja þetta risastóra þorp sem var hérna úti í hafinu og þetta var mjög fróðlegt. Já, þetta var Harry Truman-skipið og ofboðslega fróðlegt fyrir aðila eins og mig sem hefur ekki mikla þekkingu á her að labba þarna um þetta stóra þorp og sjá æfingar á þessu flugmóðurskipi og heyra í þeim sem þarna störfuðu. Þá minnist ég þess að hæstráðandi þarna sagði við okkur: Já, við í Bandaríkjunum kunnum orðið rosalega mikið að reka stríð í sandi en við vitum ekkert hvernig það er að vera hér uppi í Norður-Atlantshafinu. Þetta var eitt af því sem skipti okkur Íslendinga máli, að eitt af öflugustu herveldum í heimi, sem er norðurslóðaríki, Bandaríkin, væri að horfa aftur á þetta svæði. Ég veit líka að á þessum tíma fengum við mikið af heimsóknum hér frá — það kom varaforseti og það kom utanríkisráðherra. Allt þetta skiptir máli. Ég fór jafnframt ásamt fleiri þingmönnum í heimsókn til Bandaríkjanna að kynna mér norðurslóðastefnu Bandaríkjanna. Þetta var reyndar á þeim tíma þegar Bandaríkin höfðu tekið yfir formennsku í norðurslóðaráðinu, „Arctic Council“ eins og það heitir á ensku. Þá höfðum við rosalega miklar áhyggjur af Bandaríkjunum en það var aðallega vegna þess að þau vildu ekki að orðið hnattræn hlýnun kæmi neins staðar fram. Fyrir þá sem ekki þekkja þá snýst norðurskautið um það, það snýst um að þarna var rosalega mikill ís og ísinn er að bráðna. Hann er að bráðna vegna þess að hiti á norðurskautinu hækkar fjórum sinnum hraðar en annars staðar á hnettinum. Þannig að það er svolítið skrýtið að ætla að ræða um norðurslóðamál öðruvísi en að ræða um breytingar á hitastigi og það að ísinn sé að bráðna.
Virðulegur forseti. Á þessum tíma voru mjög miklar áhyggjur, og eru enn, af Rússum og hernaðarlegri uppbyggingu Rússa á norðurslóðum og ég man eftir því í þá tíð þegar Rússar voru hér á „Arctic Circle“-ráðstefnunni þegar verið var að spyrja Rússana út í það hvað þeir væru að gera. Auðvitað voru miklar áhyggjur. Flestir þeir sem hingað til hafa verið að ræða um norðurslóðamál hafa verið sérfræðingar, hafa verið rannsóknaraðilar sem eru að velta fyrir sér auðlindunum, velta fyrir sér umhverfisáhrifum og slíku en Rússarnir voru þeir einu sem voru í þessu. Þeim mun mikilvægara er auðvitað að Bandaríkin, Kanada og Norðurlöndin, hin norðurslóðaríkin, séu að huga að því að hafa varnarviðbrögð á norðurslóðum.
Ég verð að viðurkenna að aldrei datt mér samt sem áður í hug að áhugi Bandaríkjanna á norðurslóðum myndi færast í þá átt að vilja kaupa Grænland og ég bara tek undir með þeim sem hér hafa talað í dag: Við eigum að standa með Grænlendingum og sjálfsákvörðunarrétti þeirra um sína framtíð. Þeir eru í dag í ríkjasambandi með Danmörku, eru hluti af konungsríkinu Danmörku, en með þeim samningum sem þeir hafa fengið ráða þeir auðvitað miklu af sínum málum sjálfir og þar er bara þing og þar eru ráðherrar og þeir fara með marga af sínum stærstu málaflokkum. En samningur þeirra við Danmörku er þannig í dag að ef þeir myndu vilja sjálfstæði þá gætu þeir gert það á morgun, farið í þjóðaratkvæðagreiðslu um það á morgun. En þeir hafa valið að vera í konungssambandinu enn sem komið er. Hvort það mun einhvern tíma breytast á næstunni eða ekki veit ég ekki en ég segi fyrir mig: Ég vil styðja Grænlendinga í þeirra ákvörðunum um þeirra framtíð. Það á aldrei neinn að geta talað með þeim hætti að hægt sé að kaupa upp heilt land eða heila þjóð. Ég myndi gjarnan vilja að það væru skýr skilaboð frá okkur hér í dag. Ég hef reyndar sjálf byrjað að vinna þingsályktunartillögu sem ég er búin að senda á þingmenn og við erum að kasta á milli okkar orðalagi um nákvæmlega þetta og ég heyri að hér í þinginu er mikill stuðningur við slíkt og ég vona að við getum sameinast um það sem allra fyrst.
Virðulegur forseti. Tíminn fer hér allt of hratt því að það er svo margt sem þarf að ræða í þessum efnum. Það sem ég vil kannski þá ítreka núna varðandi Grænland er það að stuðningur okkar við Grænland fer ekki bara fram í þessum sal. Það er ekki nóg að við stöndum hér og segjum að við styðjum Grænland, við þurfum að gera eitthvað meira. Við þurfum að sýna þann stuðning í verki. Ég held að vettvangur Norðurlandanna sé góður til þess og okkur hefur tekist á síðustu árum, og sérstaklega í formennsku okkar í Norðurlandaráði, að tryggja það að Norðurlandaþjóðirnar allar hafi skilning á mikilvægi Grænlands og mikilvægi þess að Grænland sé hluti af Norðurlöndunum. Það kann vel að vera að það sé líka skynsamlegt að tala fyrir hagsmunum Grænlands og framtíð Grænlands í Brussel en það sem skiptir máli, öllu máli, bæði fyrir Grænlendinga og fyrir Íslendinga, er að fara til Washington, að tala við Bandaríkin, jú og Kanada, um frið og öryggi á norðurslóðum. Ég líkti því nú saman hér í ræðu minni um daginn að þegar við urðum fyrir eins konar árás frá okkar helsta bandamanni, sem var Bretland, þegar þeir settu okkur á lista yfir hryðjuverkamenn, beittu hryðjuverkalögum á íslenskt fyrirtæki, þá hættum við ekkert að tala við Breta. Það var einmitt þá sem þurfti að fara og tala meira og skýrar við fleiri, beita öllum leiðum. Það er það sem ég held að við eigum að gera hér. Mér fannst leiðinlegt að heyra það hjá hæstv. ráðherra að það væri eins og símanum væri einhvern veginn ekki svarað. Þá vil ég bara hvetja okkur öll sem höfum tengingar til Bandaríkjanna til að aðstoða hæstv. ráðherra í því að raddir Íslands um frið og öryggi á norðurslóðum heyrast í Washington.
Virðulegur forseti. Mig langaði líka að ræða hér um Úkraínu en hér er farið að blikka á mig þannig að ég þarf kannski að óska eftir því að fá að fara í aðra ræðu til að ræða það mál því að mér finnst mikilvægt á tímum sem þessum að við gleymum ekki Úkraínu og því stríði sem þar er háð þótt athyglin okkar akkúrat í augnablikinu hafi færst hér örlítið nær.