Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Í ágúst síðastliðnum kom ég í fyrsta sinn til Grænlands þegar ég heimsótti Ilulissat til að funda með Vestnorræna ráðinu. Grænlendingarnir tóku virkilega vel á móti okkur og umhverfið var eitthvað það stórkostlegasta sem ég hef augum litið. Á milli funda fékk ég tækifæri til að skoða byggðasafn í bænum, kynnast því hvernig Grænlendingar lifðu af landsins gæðum, bjuggu til eigin kajaka og klæði úr skinnum og veiddu sér til matar, allt saman í ótrúlega krefjandi aðstæðum. Grænlendingar eru þjóð með ríka sögu, eigið tungumál og menningu sem þeir eru stoltir af en hafa því miður ekki fengið að njóta til fulls í gegnum tíðina. Eins og svo margir frumbyggjar hafa þeir orðið fyrir miklum áhrifum frá fólki og ríkjum sem hafa tekið af þeim völdin, tekið frá þeim völdin yfir eigin landsvæðum, völdin til að taka ákvarðanir fyrir sína þjóð og jafnvel völdin yfir eigin líkama.
Fólk hefur búið í Grænlandi í yfir fjögur þúsund ár. Grænlenska þjóðin á djúpar og sterkar rætur. Rætur sem urðu til með seiglu, aðlögunarhæfni og djúpri tengingu þjóðar við landið sitt, hafið, ísinn og náttúrulífið. Heimurinn ætti í raun að líta til Grænlendinga sem fyrirmyndar; hvernig þjóðin lifði af í þessum erfiðu aðstæðum með samhjálp, þrautseigju og virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi. Líkt og á Íslandi hafa sögurnar varðveitt þessa arfleifð í aldanna rás og mótað sjálfsmynd þjóðarinnar. Á 20. öld hófst markviss barátta Grænlendinga fyrir sjálfsákvörðunarrétti sem leiddi til heimastjórnar árið 1979 og sjálfsstjórnar árið 2009. Grænland er þjóð með sjálfsákvörðunarrétt, sterka sjálfsmynd og skýra framtíðarsýn um aukið sjálfstæði.
Í heilt ár hefur grænlenska þjóðin þurft að sitja undir reglulegum hótunum frá forseta Bandaríkjanna sem hefur uppi stór og endurtekin orð um að hann verði að eignast Grænland. Þrátt fyrir að Grænlendingar, Danir og aðrar þjóðir sem standa með þeim hafi sagt það hátt og skýrt að Grænland sé alls ekki til sölu heldur vitleysan áfram. Hvernig er hægt að sýna einni þjóð aðra eins vanvirðingu, frú forseti?
Það er átakanlegt að eiga samtöl við kollega í Grænlandi og fá tækifæri til að reyna að setja sig í spor þeirra. Það er auðvitað ekki hægt, frú forseti, að hugsa sér samtölin sem þau þurfa að eiga við börnin sín. Hvernig útskýrir maður svona veruleikafirrta stöðu fyrir börnum án þess að valda þeim gríðarlegum áhyggjum? Hvernig ætli foreldrum gangi að vera til staðar fyrir börnin sín á sama tíma og áhyggjur af mögulegri innrás frá stærsta herveldi heims hanga yfir þeim? Hvernig ætli það sé að reyna að búa til einhver framtíðarplön fyrir sjálfan sig og landið með þetta hangandi yfir sér? Nei, frú forseti, það er ekki hægt að setja sig í þessi spor og ég vona að við hér á Íslandi þurfum aldrei að gera það.
Það sem við Íslendingar verðum að gera núna er að vera besta útgáfa af nágrannaþjóð sem hægt er að hugsa sér. Ef það er eitthvað sem við Íslendingar kunnum að gera þá er það einmitt það að standa þétt með nágranna okkar þegar hann á um sárt að binda. Samtakamáttur Íslendinga þegar þeir taka sig til er slíkur ofurkraftur að ég leyfi mér að efast um að annað eins fyrirfinnist hreinlega á byggðu bóli. Nú er tími fyrir okkur að standa með Grænlendingum sem aldrei fyrr; sem þingheimur, ríkisstjórn og þjóð með þjóð.
Í langan tíma höfum við átt í nánum og traustum samskiptum á jafningjagrundvelli við Grænlendinga. Hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, fór í opinbera vinnuheimsókn til Grænlands í haust og fundaði með Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, þar sem þau fylgdu eftir samstarfsyfirlýsingu frá 2022. Í henni kemur fram að fáar þjóðir eigi eins mikið undir því að geta átt frjáls og hindrunarlaus viðskipti og þær sem búa í hinum strjálbýlu löndum við Norður-Atlantshafið og að rík tækifæri séu í að efla viðskipti landanna. Leiðtogarnir skuldbundu sig til að hraða vinnu við undirbúning viðskiptasamnings. Það eru einnig fjölmörg tækifæri til að efla tengsl Íslands og Grænlands á sviði félags- og menntamála, íþrótta, menningarmála og heilbrigðismála. Það eru mörg dæmi um vel heppnað samstarf á milli þjóðanna á þessum sviðum. Ég nefni sem dæmi KALAK, vinafélag Íslands og Grænlands sem hefur starfað frá árinu 1992. Stærsta verkefni félagsins ár hvert er heimsókn 11 ára barna frá litlu þorpunum á austurströnd Grænlands sem koma ásamt fylgdarliði kennara og dvelja á Íslandi í rúmlega tvær vikur, sækja skóla, fara í sundtíma og fleira eftirminnilegt. Stelpur rokka voru með rokkbúðir í Grænlandi í samstarfi við grænlenskar tónlistarkonur. Festir þekkja til skákverkefnisins Hróksins sem Hrafn Jökulsson heitinn leiddi með dýrmætum árangri. Nú er rétti tíminn til að kortleggja þau samfélagslegu samstarfsverkefni sem hafa verið á milli landanna tveggja og finna leiðir til að styrkja þau og efla. Það þarf á sama tíma að búa til skýra farvegi og tengingar til að stuðla að enn frekara samstarfi á milli Grænlands og Íslands á hinum ýmsu sviðum.
Virðulegur forseti. Veruleikinn er breyttur og heimsmyndin sem kynslóðin mín ólst upp við og hélt að væri óhagganleg er ekki lengur til staðar. Það tekur tíma að ná utan um það. Ég er ánægð með framgöngu hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra og hvernig þær hafa talað skýrt fyrir sjálfsákvörðunarrétti Grænlands og að við stöndum með grænlensku þjóðinni, sama hvað. Ekkert um Grænland án Grænlands. Ég hvet hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnina alla til að stuðla að því að Ísland finni margar og ólíkar leiðir til að standa með Grænlendingum í gegnum menningu, íþróttir og hvar sem Grænlendingar sjálfir sjá fyrir sér að við getum stutt við bakið á þjóðinni á þessum erfiðu tímum.
Virðulegur forseti. Íslendingar og Grænlendingar eiga sér sögu um sterk tengsl sem við þurfum að styrkja hratt og vel, nú sem aldrei fyrr.