157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[18:51]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka utanríkisráðherra fyrir skýrslu um alþjóðamál og þá umræðu sem hefur verið hér í dag. Hún er kannski óvenjumikil og lífleg undir þessum lið og það endurspeglar bara þann veruleika að ég held að mörg okkar sem vorum kosin á þing fyrir ári síðan hafi ekki grunað að jafn mikil athygli og í raun vinna á vettvangi þingsins innan lands og utan myndi lúta að utanríkismálum, öryggis- og varnarmálum. Ég var hluti af þingmannanefnd sem vann að nýrri stefnu í öryggis- og varnarmálum eða undirbyggði hana. Hún liggur núna fyrir þinginu og eins og hv. þingmaður Víðir Reynisson kom inn á hér áðan horfir hún bæði inn á við að því sem við þurfum að styrkja í okkar innviðum og vörnum til að vera betra og seigara samfélag, með meiri seiglu, en horfir líka út og til þess heims sem er breyttur. Þá þarf að fjölga stoðunum undir varnar- og öryggishugsun og stefnu landsins.

Fyrir þessa umræðu fór ég aðeins yfir skrif og ræður það sem af er þessu ári og það er ótrúlega mikið sem hefur gerst. Eiginlega hefur allt verið á fleygiferð frá upphafi þessa árs. Ég hóf árið á að skrifa grein sem hét Hættulegri heimur 2026. Ísland á nefnilega allt undir því að stórveldi og stærri ríki virði alþjóðalög, að alþjóðakerfið sem hefur tryggt frið og viðskiptafrelsi í 75 ár haldi og að leikreglur í samskiptum þjóða séu virtar. Allt síðasta ár hef ég lýst áhyggjum af því að það halli mjög undan fæti í þessu og ég hef að sjálfsögðu ekki verið einn um það. Nýlegir atburðir, og við getum tekið Venesúela sem dæmi, undirstrika þessar áhyggjur og í raun auka þær.

Í fyrsta lagi vegna þess að aðgerðir af þessu tagi skapa fordæmi. Við getum talað um Kína og Taívan og við getum talað um röksemdir Rússa gagnvart Úkraínu sem eru fráleitar og þá staðreynd að alþjóðlega öryggiskerfið byggir á því að það sé í raun aðeins öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem getur gefið leyfi fyrir valdbeitingu nema um beina sjálfsvörn sé að ræða. Það þarf ekkert að orðlengja að þessar leikreglur hafa ekki verið virtar og við þurfum í rauninni að taka mið af því sem segir beinlínis í nýrri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna. Hvet ég þingmenn til að kynna sér hana sem ekki hafa enn þá gert það. Það sem hefur þó auðvitað tekið sviðið undanfarið er að eftir innrásina í Venesúela hafa Bandaríkjaforseti og talsmenn Bandaríkjastjórnar talað af auknum þunga um að eignast Grænland, möguleikann á notkun hervalds hefur ekki verið útilokaður heldur ítrekaður þó að þar hafi verið gefnar mikilvægar og mildandi yfirlýsingar síðast í gær en þessi staða er auðvitað grafalvarleg. Það er fordæmalaust að heyra hótanir á hendur nánum bandamönnum og þetta er ekki aðeins umhugsunarvert efni fyrir Grænland og Danmörku heldur líka Ísland og NATO og ég hef verið ánægður með að heyra það að mestu í þessari umræðu hér í dag að þingið stendur með Grænlandi og Danmörku og alþjóðalögum og fullveldi og leikreglum í samskiptum ríkja sem við eigum mjög mikið undir. Við eigum auðvitað mjög auðvelt með að setja okkur í spor Grænlendinga, ekki satt? Þess vegna þurfum við á hófstilltan hátt en líka markvissan og málefnalegan hátt og af mikilli ábyrgð og alvöru að ræða hvaða valkosti Ísland á í breyttum heimi. Þetta verkefni þurfum við að takast á hendur þótt við vitum ekki nákvæmlega hvernig þessi breytti heimur verður á morgun. Hann er í örri þróun.

Þeirrar spurningar var spurt og henni varpað upp á málþingi Alþjóðamálastofnunar á dögunum. Fyrrverandi forsætisráðherra, Þorsteinn Pálsson, sem var formaður Sjálfstæðisflokksins, bað þá sem tóku þátt í þeirri umræðu að svara því hvaða valkosti af þremur sem hann gaf Ísland ætti að velja: Hlutleysi, það að vera fyrst og fremst á áhrifasvæði Bandaríkjanna eða fullir aðilar að Evrópusambandinu. Í stuttu máli tók enginn undir hlutleysi. Það væri óraunhæft fyrir smáríki þar sem staðan væri eins og hún væri og hinar eldri leikreglur væru á fallanda fæti. Við sjáum að vinaþjóðir okkar, eins og Svíar og Finnar sem hafa verið með hlutleysisstefnu, eru gengnar í NATO. Það var heldur raunar enginn sem mælti fyrir bandarísku leiðinni. Það væri mjög ójafn leikur. Ég tel skýr rök fyrir því, hvort sem við horfum til öryggishagsmuna, og þá í mjög breiðum skilningi, eða sérstaklega til efnahagshagsmuna og hugsanlegrar efnahagslegrar ógnar í heimi tollastríða og stórátaka, að þá skipti verulegu máli fyrir okkur að vera í bandalagi við aðrar þjóðir en ekki ein andspænis stórveldum. Við getum horft til fordæma nákvæmlega eins og Eystrasaltsríkjanna sem gengu í ESB og NATO til að tryggja sjálfstæði og fullveldi eftir fall múrsins. Ógn þeirra stafaði frá Rússlandi og gerir enn. Svíar og Finnar létu af hlutleysisstefnu eftir innrás Rússa í Úkraínu og eru sömuleiðis hvorir tveggja innan ESB og NATO. Ég vil taka fram að við höfum mjög góða reynslu af samvinnu og samskiptum við Bandaríkin frá því að varnarsamningurinn var gerður en við verðum einfaldlega að taka breytta stefnu Bandaríkjanna inn í myndina og máta okkur inn í hana. Við þurfum að skoða ýmislegt, m.a. grunngildi okkar og sjálfsmynd. Við erum norrænt velferðarríki. Hvar eigum við þá heima? Hér hefur verið nefnt að við eigum að standa sem fastast með Norðurlöndunum og ég tek undir það. Hvort eigum við heima með Evrópu eða Bandaríkjunum í þessum skilningi? Mér finnst það býsna afdráttarlaust. Hvað varðar efnahagslega hagsmuni verðum við einfaldlega að horfast í augu við það að stæðum við ein í heimi þar sem tollum er hótað væri t.d. staða okkar mjög ólík því sem staða Danmerkur og ríkjanna átta var núna í vikunni vegna þess að hótanir um tolla á hendur Danmörku eru hótanir um tolla á hendur öllu Evrópusambandinu. Þar er þá ein sterkasta viðskiptablokk heims á fleti fyrir til að bregðast við. Það er því beinlínis efnahagsleg áhætta og ógn að geta klemmst á milli í stórveldaslagnum. Svo eru það öryggishagsmunirnir og þar eru aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin að mínu mati áfram hornsteinar. Þótt margir hafi sett spurningarmerki við NATO þá vakti það mér alla vega svolitla von að fá í dag senda yfirlýsingu stjórnar þingmannasamtaka NATO sem undirstrikaði mikilvægi sameiginlegra varna, sameiginlegra áherslna þingmanna á samstarf yfir Atlantshafið og stuðnings við fullveldi allra þjóða í NATO, þar á meðal Danmerkur og Grænlands. Að þessu stóðu sem sagt þingmenn frá lykilríkjum NATO sem eru þarna í stjórninni, m.a. frá Bandaríkjunum og þannig mætti áfram telja. Í þessum heimi er líka undir sjálfstæði í alls konar merkingu, sjálfstæði til að vera stolt af jafnréttisstefnu og því að fylgja henni á alþjóðavettvangi, fylgja eftir loftslagsmálum, umhverfismálum og stjórn auðlinda. Hvar er þessum lykilmálum í stefnu Íslands best borgið? (Forseti hringir.) Að mínu mati með Evrópu (Forseti hringir.) en við skulum halda áfram þessari umræðu, samtölum og hugsuninni en gerum það markvisst (Forseti hringir.) því annars getur staðan teiknast upp þannig að einhver taki þessar ákvarðanir fyrir okkur.