Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það kom engum á óvart að hv. þingmaður myndi tjá sig um Evrópusambandið og mikilvægi þess að Ísland gengi í Evrópusambandið. Það þarf heldur ekki að koma neinum á óvart að ég er hv. þingmanni algjörlega ósammála í þeim efnum. Nú er klukkan að verða sjö og ég veit að margir eru orðnir þreyttir. Það voru læti hér í upphafi þingfundar og asi í fólki að ræða þessi mál. En kannski þurfum við einmitt að gera þetta svona með mjög yfirveguðum hætti. Sú sem hér stendur mun aldrei veigra sér við því að tala um Evrópusambandið, kosti þess og galla.
Virðulegur forseti. Ég verð líka að viðurkenna að mér finnst að ákveðnu leyti hættulegt þegar þeir sem hafa verið og eru yfirlýstir stuðningsmenn þess að ganga í Evrópusambandið nota hvert einasta tækifæri, og jafnvel einhvern veginn með hræðsluáróðri, til að tala um mikilvægi þess að ganga í Evrópusambandið. Evrópusambandið er í mínum huga fínt. Það er frábært að Evrópusambandið varð til, það átti að koma í veg fyrir stríð í Evrópu og það hefur virkað vel fyrir marga. Samstarf okkar við Evrópusambandið er líka mjög gott og ég met það mikils. Ég tel að EES-samningurinn sé einn af okkar mikilvægustu samningum. En þegar talað er um Evrópusambandið eins og einhvers konar varnarbandalag — hv. þingmaður nefndi það áðan, ég held að hann hafi sagt að Finnar og Svíar hafi látið af hlutleysisstefnum sínum. Svíar gerðu það, já. Finnar höfðu reyndar lofað Rússum á sínum tíma að ganga ekki í NATO. Finnar og Svíar eru í Evrópusambandinu og hafa verið í Evrópusambandinu. Það sem Finnar og Svíar gerðu þegar Rússar réðust af fullu afli inn í Úkraínu var að þeir leituðu í NATO.
Spurning mín til hv. þingmanns er þessi: Er það ekki einmitt, eins og hv. þingmaður vísar svolítið í, NATO sem er varnarbandalagið? Eins ágætt og Evrópusambandið kann að vera (Forseti hringir.) sem tollabandalag eða samstarfsaðilar um rannsóknir og þróun og í hin ýmsu mál.