Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir andsvarið og svara því þannig: Já, mín skoðun er sú að NATO sé og verði gríðarlega mikilvægt fyrir varnir allra aðildarríkja og Evrópu og Bandaríkjanna, ef samstaðan heldur um það. Þá erum við ekki síst að tala um hefðbundnar varnir við hefðbundnum hernaði. Veruleikinn sem blasir við bara núna er sá að það sem við höfum kallað fjölþáttaógnir er í raun stríð sem háð er á hendur aðildarríkjum NATO af Rússum og aðilum þeim tengdum. Það verður einfaldlega að dýpka aðeins umræðuna í þessum sal, og í samfélaginu, um það að NATO sjálft, en líka löndin innan þess, horfir m.a. til Evrópusambandsins á því sviði.
Varnirnar sem grípa þarf til eru að sumu leyti borgaralegar, eins og þegar um er að ræða að verja sæstrengi, bregðast við netárásum eða upplýsingaóreiðu o.s.frv. Þannig að það verður bara, þó að af einhverjum ástæðum sé rosalega viðkvæmt að tala um Evrópusambandið, að horfast í augu við það að þarna hefur Evrópusambandið gríðarlegu hlutverki að gegna við það að undirbúa lönd fyrir það að endurvopnast, eins og núna stendur til, og að tryggja fjármagn til þess á nægilega góðum kjörum.
En svo er það hin efnahagslega ógn í heimi tollastríða. Þar er Evrópusambandið gríðarlega sterkur aðili með flesta fríverslunarsamninga allra svæða við önnur svæði í heiminum. Þetta þurfum við bara að ræða. (Forseti hringir.) Ég átta mig á því að sumt í þessari umræðu er nýtt og þá þurfum við að dýpka nálgunina og tala meira um þetta, eins og við erum að gera hér.