Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið er bara já. Ég fletti hérna upp þingsályktun um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu 2024–2028 og hún er bara nokkuð ítarleg. Þarna er farið yfir fimm þætti og talað um, virðulegur forseti, eftirfarandi:
1. Öflugt tvíhliða samstarf og samskipti við stjórnvöld, þjóðþing, stofnanir, félagasamtök og atvinnulíf.
2. Virka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og málafylgju sem styðji við örugga, sjálfstæða, fullvalda og lýðræðislega Úkraínu í samræmi við vilja íbúa landsins, auk friðarferlis forseta Úkraínu og ábyrgðarskyldu Rússlands vegna áhrifa stríðsins.
3. Stuðning við varnarbaráttu Úkraínu til að tryggja öryggi borgara og mikilvægra innviða.
4. Mannúðaraðstoð við íbúa Úkraínu og vernd óbreyttra borgara í átökum.
5. Viðhald grunnþjónustu og efnahags Úkraínu meðan á átökum stendur og stuðning við endurreisn og uppbyggingu eftir að þeim lýkur.
Svo er líka fjallað um heildarframlög íslenskra stjórnvalda vegna Úkraínu á þessu tímabili og það var kannski það sem ég var að vísa í, við höfum ekki staðið við það sem við lofuðum. Þar ætluðum við að vinna í samræmi við það sem önnur Norðurlönd væri að leggja til. En stutta svarið er jú, sú sem hér stendur mun styðja áfram við þetta. Ég hef verið talsmaður þess frá því að Rússar réðust að fullu inn í Úkraínu og ég held reyndar að alþjóðasamfélagið hafi brugðist Úkraínu þegar Rússar réðust inn á Krímskaga. Þar var brugðist við með allt of veikum hætti og það sýndi sig svo einhverjum árum seinna hver niðurstaðan getur orðið. Þetta er nákvæmlega það sem auðvitað okkar helstu vinir í Eystrasaltsríkjunum óttast. Ef samið er núna um að taka einhverja hluta af Úkraínu og stríðinu slotar í einhvern tíma, hvað verður tekið næst? Þess vegna er þetta raunveruleg varnarbarátta fyrir okkar vini og helstu bandamenn innan Evrópu og það hefur líka áhrif uppi á Íslandi. En við þurfum öll sem þingmenn að sameinast um að tala einmitt fyrir því og útskýra fyrir íslensku þjóðinni (Forseti hringir.) af hverju þetta er mikilvægt líka út frá öryggi okkar.