sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lögum um ófrjósemisaðgerðir, nr. 35/2019. Frumvarpið var lagt fram á síðustu þremur löggjafarþingum án þess að ná fram að ganga og er nú flutt með breytingum.
Í frumvarpinu eru m.a. lagðar til ýmsar breytingar með það fyrir augum að veita Sjúkratryggingum Íslands skýrari heimildir til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem umsjónaraðili sjúkratrygginga landsmanna og kaupandi heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins. Lagðar eru til breytingar á tilteknum ákvæðum sem varða réttindi sjúkratryggðra. Ber þar fyrst að nefna að lagt er til að biðtími eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins verði styttur úr sex mánuðum í þrjá, til hagsbóta fyrir þá einstaklinga sem flytja hingað til lands. Samhliða er lagt til að endurgreiðslur vegna kostnaðar sem hlýst af veikindum og slysum erlendis og utan Evrópska efnahagssvæðisins verði takmarkaðar. Hvort tveggja er eins og tíðkast á hinum Norðurlöndunum enda einstaklingar flestir tryggðir fyrir kostnaði vegna veikinda og slysa í gegnum einkatryggingar, svo sem kreditkortatryggingar. Í frumvarpinu er lagt til að réttur til greiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis verði takmarkaður við afmarkaðan hóp sjúkratryggðra, svo sem námsmenn og starfsmenn sendiráða, veikist þeir eða slasist í námsríki.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að Sjúkratryggingum Íslands verði veittar skýrari heimildir til að taka ákvörðun um það hvort einstaklingur sé sjúkratryggður hér á landi. Lög um sjúkratryggingar miða nú við að einstaklingur sé sjúkratryggður á grundvelli lögheimilisskráningar hér á landi. Hins vegar eru dæmi um að einstaklingar haldi lögheimilisskráningu sinni hér eftir flutning úr landi og njóti þannig áfram greiðsluþátttöku ríkisins vegna heilbrigðisþjónustu og annarra réttinda sem sjúkratryggingar veita án þess að greiða í sameiginlega sjóði á Íslandi. Í frumvarpinu er lagt til að Sjúkratryggingum Íslands verði heimilt að leggja mat á raunverulega búsetu sjúkratryggðs, svo sem á grundvelli upplýsinga frá skattyfirvöldum. Sýni gögn fram á raunverulega búsetu hér á landi heldur sjúkratryggður sínum réttindum, en ella er réttur til sjúkratryggingar felldur niður.
Virðulegi forseti. Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á gjaldtökuheimildum, svo sem að heimilt verði að taka gjald fyrir þá þjónustu heilsugæslunnar sem telst fjarheilbrigðisþjónusta, að heimilt verði að taka svonefnt „skrópgjald“ þegar sjúklingur mætir ekki í tíma án þess að boða forföll, auk þess sem ófrjósemisaðgerðir verði felldar í almenna greiðsluþátttökukerfið í stað þess að vera gjaldfrjálsar. Gjaldfrelsi þeirra aðgerða byggir á áratugagömlum reglum sem settar voru við allt aðrar aðstæður og ætlað að tryggja aðgengi að ófrjósemisaðgerðum óháð efnahag. Greiðsluþátttaka hins opinbera í dag byggir á því markmiði að aðgengi sé tryggt óháð efnahag með þaki á greiðsluþátttöku sjúkratryggðra vegna heilbrigðisþjónustu.
Í sumar kom út skýrsla um stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar Íslands sem samnings- og eftirlitsaðila, þ.e. sem kaupanda heilbrigðisþjónustu. Í frumvarpinu eru atriði sem varða viðbrögð við athugasemdum og ábendingum frá Ríkisendurskoðun, m.a. atriði sem lúta að aðstæðum þegar samningar renna út án þess að nýr samningur liggi fyrir. Ekki er langt síðan að áralöngu samningsleysi við sérgreinalækna og sjúkraþjálfara lauk, en samningar tókust árin 2023 og 2024. Í samningsleysinu tóku Sjúkratryggingar Íslands þátt í kostnaði sjúkratryggðra á grundvelli gjaldskráa sem tóku ekki verðlagsbreytingum og þjónustuveitendur tóku af þeim sökum aukagjöld af sjúklingum. Samningsleysi til margra ára felur í sér mikla óvissu og óhagræði fyrir alla; sjúklinga, þjónustuveitendur og heilbrigðisyfirvöld. Grunnmarkmiðum greiðsluþátttökukerfisins um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu er jafnframt stefnt í hættu með langvarandi samningsleysi þar sem aukagjöld eru lögð á utan afsláttarstofns. Þiggi þjónustuveitandi greiðslur frá sjúkratryggingastofnuninni utan samnings hafa sjúklingar ríka hagsmuni af því að staðið sé vörð um jafnt aðgengi að þjónustu. Stýring á útgjöldum er einnig mun takmarkaðri þegar samningar eru ekki fyrir hendi og ófyrirsjáanlegt hvort þau verði innan fjárheimilda til viðkomandi málaflokks hverju sinni.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæði 38. gr. laga um sjúkratryggingar sem fjallar um þær aðstæður þegar samningur um heilbrigðisþjónustu er ekki fyrir hendi milli sjúkratrygginga og veitanda þjónustunnar, þ.e. þegar samningur rennur út. Lagt til að sett verði 12 mánaða hámark á þátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu utan samnings og að þjónustuveitanda, sem fær greiðslur í samningsleysi, verði óheimilt að taka aukagjöld af sjúklingi, líkt og gildir þegar samningur er fyrir hendi. Fari svo að samningar takist ekki og greiðslur fara eftir gjaldskrá í samningsleysi er lagt til að gjaldskráin verði endurskoðuð eftir þörfum með tilliti til verðlagsþróunar.
Frú forseti. Í áðurnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar segir m.a. að mikilvægt sé að stofnunin efli eftirlit og að heilbrigðisráðuneyti leiti leiða til að styrkja stofnunina svo að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu á árangursríkan hátt. Þá sé mikilvægt, í ljósi þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem fólgnir eru í samningum stofnunarinnar, að eftirlit hennar með framkvæmd samninga sé markvisst, bæði hvað snýr að kostnaði og gæðum. Að mati Ríkisendurskoðunar er brýnt að styrkja samningstöðu sjúkratryggingastofnunarinnar og þá koma fram sjónarmið um að sjúkratryggingastofnunin eigi að gera ríkari kröfur um gagnsæi og upplýsingagjöf um kostnað og rekstur þjónustuveitenda. Segir í skýrslunni að mikilvægt sé að greiðslur endurspegli raunverulegan rekstrarkostnað og að sjúkratryggingastofnunin efli eftirlit með raunkostnaði þjónustuveitenda og nýti þær upplýsingar með markvissum hætti við samningsgerð.
Í samræmi við fyrrgreint er í frumvarpinu lagt til að í samningum Sjúkratrygginga Íslands sé kveðið á um rekstrarform, sem skal að jafnaði vera í formi hlutafélags eða einkahlutafélags. Sjúkratryggingum Íslands verði þó heimilt að víkja frá þessu ef starfsemi er lítil að umsvifum eða ekki rekin í ágóðaskyni. Lög um hlutafélög og lög um einkahlutafélög myndu skýra umgjörð um rekstur félaganna, þ.m.t. stjórn og framkvæmdastjórn, auk þess sem félagaformið aðgreinir rekstur frá eigendum sínum. Þá ber hluta- og einkahlutafélögum að standa skil á ársreikningum. Með því að viðsemjendur Sjúkratrygginga Íslands hafi reksturinn í slíkum félögum eykst gagnsæi um þann kostnað sem hlýst af starfseminni í gegnum samninga við stofnunina og gerir henni kleift að greina með mun ítarlegri hætti kostnað við heilbrigðisþjónustu hjá sjálfstætt starfandi aðilum. Kostnaðargreiningar eru mikilvægar til að stofnunin geti staðið við hlutverk sitt og sinnt markmiðum laganna um að stuðla að rekstrar- og þjóðhagslegri hagkvæmni heilbrigðisþjónustu til lengri tíma.
Þá er lagt til að samningsaðilar afhendi Sjúkratryggingum Íslands ársreikninga og að stofnunin geti kallað eftir frekari upplýsingum frá samningsaðilum, svo sem um launakostnað, fjölda starfsmanna sem og upplýsingar um viðskipti við tengda aðila. Breytingarnar eru í samræmi við fyrrgreindar ábendingar Ríkisendurskoðunar um aukið gagnsæi um þær háu fjárhæðir sem fara í gegnum samninga Sjúkratrygginga Íslands.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að stjórn Sjúkratrygginga Íslands verði lögð niður til að einfalda yfirstjórn stofnunarinnar, en breytingin er í samræmi við tillögur um hagræðingu í ríkisrekstri og á sér í raun langa forsögu. Þá er lagt til að festa í lög rétt Sjúkratrygginga Íslands til að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu á grundvelli svonefndra fjármögnunarlíkana sem notuð hafa verið til að reikna út greiðslur til heilsugæslustöðva. Einnig að stofnuninni verði heimilt að fresta töku ákvörðunar vegna beiðna um upplýsingar um yfirstandandi samningaviðræður um kaup á heilbrigðisþjónustu, telji stofnunin að afhending upplýsinganna geti haft neikvæð áhrif á framgang viðræðna.
Frú forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum þessa viðamikla frumvarps. Leyfi ég mér því að leggja til að frumvarpinu verði, að lokinni 1. umræðu, vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.