sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir yfirferð hennar á þeim málum sem hér um ræðir. Varðandi þessar breytingar á lögum um sjúkratryggingar þá er ljóst að frá því að málið var síðast í meðferð þingsins þá hafa verið gerðar allnokkrar breytingar á því, bætt inn í hlutum og öðrum breytt. Þetta frumvarp er svo víðfeðmt, það er svo margt þarna inn í, allt mögulegt, svona algjört bland í poka. En frá því að það var síðast í meðförum þingsins þá hafa þessar breytingar verið gerðar. Frumvarpið var í samráðsgátt og þar eru mjög harðorðar umsagnir um þetta frumvarp, m.a. veita umsögn sjálfstætt starfandi aðilar í heilbrigðisgeiranum; tannlæknar, sjúkraþjálfarar, ljósmæður, sérgreinalæknar, talmeinafræðingar og fleiri, sem lýsa yfir miklum áhyggjum af þessum breytingum og telja að það sé verulega verið að íþyngja þessari stétt, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólki. Stjórn Læknafélags Íslands er líka með mjög harðorða umsögn í samráðsgáttinni hvað þetta varðar og fleira til og tekur af fullum þunga undir það sem aðilar í einkageiranum eru að benda á og hafa áhyggjur af.
Mig langar til að fá viðbrögð hæstv. heilbrigðisráðherra við þessum harðorðu umsögnum. Var eitthvað litið til þeirra? Verður litið til þeirra að hennar mati? Ég vænti þess að hæstv. ráðherra hafi kynnt sér þetta og viti út á hvað málið gengur því að þessir aðilar komu líka fram í fjölmiðlum fyrir nokkrum vikum og vöktu mikla athygli á þessu og þeim áhyggjum sem þeir hafa.