157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.

328. mál
[20:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi þessar hugmyndir um félagaformið, einkahlutafélög eða samlagsfélög, þá velti ég því líka fyrir mér í rauninni hvað það er sem Sjúkratryggingar Íslands ætla að gera, hver tilgangurinn sé með því að eyða kröftum í það að velta því fyrir sér hvernig tekjum þessara félaga er varið. Frá mínum bæjardyrum séð hlýtur verkefnið að vera afar skýrt. Sjúkratryggingar Íslands kaupa einhverja þjónustu af einhverjum félögum eða einstaklingum úti í bæ og það er gerður um það samningur. Annaðhvort standa menn við þann samning og afhenda þá vöru sem Sjúkratryggingar Íslands kaupa eða ekki. Það að stofnunin ætli að fara að hafa einhverja skoðun á því hvernig tekjum þess félags er varið, hvernig það er byggt upp, finnst mér vera langt út fyrir hlutverk Sjúkratrygginga Íslands. Ef menn ætla að festast í þessu þá held ég að það verði til þess fallið að það verði ekki mikil hagkvæmni eða mikill afrakstur af slíkri skoðun. Sjúkratryggingar Íslands eiga að gera skýrar kröfur um afhendingu á vöru og þjónustu sem samið er um, hafa eftirlit með því að það sé gert, en ekki að hafa einhverja skoðun á því hvernig þeir einstaklingar sem hafa tekjur með slíkum samningum ráðstafa þeim eða byggja upp sinn rekstur. Það er í rauninni ekki mál Sjúkratrygginga Íslands.

Annað sem ég vildi velta aðeins upp er að mér finnst það ekki endilega rökstutt og í sjálfu sér finnst mér engin rök hníga í þá átt að stytta biðtíma manna eftir aðgangi að íslensku sjúkratryggingakerfi þegar þeir flytja hingað til lands, úr sex mánuðum eins og er í dag í þrjá mánuði. Ég hefði jafnvel haldið að það væri tilefni til þess að lengja þennan tíma í heilt ár í ljósi þeirrar ásóknar (Forseti hringir.) sem hefur verið hingað til Íslands, ekki síst ásókn í íslenskt heilbrigðiskerfi og flutninga manna og komu hingað (Forseti hringir.) í þeim tilgangi oftast einum að komast að íslensku heilbrigðiskerfi.