157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.

320. mál
[20:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að bregðast við fyrri spurningu minni. Ég vil bara ítreka að þetta er tengt. Samkeppnissjóðirnir eru eitt og það er mikilvægt að þeir séu styrkir og góðir, skilvirkir og allt það sem fjallað er um í frumvarpinu. En það hlýtur að vera áhyggjuefni, fyrir ríkisstjórn sem talaði fyrir aukinni verðmætasköpun, þegar ástandið er með þeim hætti sem það er í dag. Hér hafa verið lagðir skattar á atvinnulífið og enn frekari skattar boðaðir. Þegar kemur að nýsköpun, sem ég hélt að við værum öll sammála um, var líka dregið úr fjármagni til hennar í síðustu fjárlögum. Það stendur skýrt, það er meira á lið 7.20 en ekki 7.10 sem liggur kannski hér undir. En ég ætla að fá að endurtaka hina spurninguna mína, sem er: Hvaða mælikvarðar eru það undir þessu málefnasviði, 7.1, í fjármálaáætluninni sem hæstv. ráðherra er að vísa til í greinargerðinni? Það lýtur auðvitað að því hvernig við, eða ég sem þingmaður, getum fylgst með því hvort sá árangur næst sem ráðherra vill ná fram með þessum breytingum.