157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

varamenn taka þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Sigurður Helgi Pálmason og Sigurjón Þórðarson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hafa borist bréf frá Bergþóri Ólasyni og Ingibjörgu Davíðsdóttur um að þau verði fjarverandi frá þingstörfum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðrún Hafsteinsdóttir verði fjarverandi næstu daga. Í gær tóku því sæti á Alþingi, sem varaþingmenn fyrir þau, hér að ofan talin: 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Rúnar Sigurjónsson, 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Elín Íris Fanndal, 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, Katrín Sif Árnadóttir, 1. varamaður á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, Eiríkur S. Svavarsson, 3. varamaður á lista Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, Hákon Hermannsson, en varaþingmenn ofar á lista hafa boðað forföll, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ingveldur Anna Sigurðardóttir.

Að lokum hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðlaugur Þór Þórðarson verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Brynjar Níelsson.

Rúnar Sigurjónsson, Elín Íris Fanndal, Katrín Sif Árnadóttir, Eiríkur S. Svavarsson, Hákon Hermannsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttur og Brynjar Níelsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.