157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

samvinna um aðgerðir í efnahagsmálum.

[13:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að við lifum á tímum mikillar óvissu núna í heimsmálunum. Það er mikil alþjóðleg spenna og efnahagslegur óróleiki og sveiflur í alþjóðakerfinu hafa auðvitað bein áhrif á lítið og opið hagkerfi eins og Ísland. Við höfum reynt að ná hér niður verðbólgu og vöxtum sem hefur ekki skilað nægilegum árangri, í rauninni kannski engum árangri enn sem komið er. Við sjáum það að verðbólga er hugsanlega að hækka og vextir þar af leiðandi ekki að lækka, hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi er að aukast í landinu. Það eru vissulega blikur á lofti.

Í ljósi þessa alls þá er staðan einfaldlega þannig að það þarf kannski að endurskoða hlutina og gera það á heildstæðari hátt þannig að við köllum til fleiri aðila að borðinu. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra sem hefur talað mikið fyrir því að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu, sem er jú eitt mikilvægasta í rauninni og mestu kjarabætur sem við getum náð fyrir heimilin í landinu er að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þar sem við erum ekki að ná tilætluðum árangri langar mig til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig henni hugnist það að kalla hreinlega til fleiri aðila að borðinu; t.d. ef við horfum til sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins, Seðlabanka Íslands, og svo má áfram telja. Telur hún að núna sé staðan með þeim hætti að við þurfum að fara að horfa á það að vinna betur saman?