samvinna um aðgerðir í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég get auðvitað tekið undir það að samvinna er fyrir öllu. Það skiptir máli að virkt samtal sé á milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins, bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar. Ég á reglulega fundi með þessum aðilum. Ég heyri reglulega í seðlabankastjóra, ég tala reglulega við verkalýðshreyfinguna, það eru komnir nýir aðilar inn í Samtök atvinnulífsins sem ég vænti þess að verði góð samskipti við líka. Við erum líka með virkt Þjóðhagsráð sem hittist reglulega til að fara yfir stöðu mála. Það er því ekki svo að samtalið sé ekki virkt. Vissulega er það jákvætt ef fólk vill sjá aukna samvinnu og ég kalla líka eftir tillögum hér ef þær koma inn á borðið. Mig langar samt að segja: Ég get ekki tekið undir það að engar breytingar hafi orðið hér á, vextir hafa lækkað að undanförnu. Já, það kom mæling í desember sem var meira upp á við en við hefðum viljað. Það var samt lægsta verðbólga í desember í fimm ár. Tölurnar sem við sáum í nóvember og desember eru tölur sem sáust aldrei á síðasta kjörtímabili. Myndi ég vilja sjá þær fara hraðar niður? Ekki spurning. Erum við að gefast upp og ætlum við bara að skipta um kúrs strax? Alls ekki. Við erum að vinna eftir því plani að skila hallalausum fjárlögum sem er það besta sem við getum gert ríkisfjármálamegin. Við erum að taka erfiðar ákvarðanir sem oft er rökrætt og verður án efa rökrétt hér um á næsta ári til að loka þessu gati. Varðandi hagvaxtartölur og fleira slíkt voru kannski háar tölur á síðasta kjörtímabili en á mann voru þær engar og gerðu það að verkum að við höfum séð vaxtarverki víða í innviðum okkar og þarna erum við að breyta um takt.