157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

samvinna um aðgerðir í efnahagsmálum.

[13:39]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Það eru vissulega blikur á lofti og jafnvel núna í útsölumánuðinum er útlit fyrir að verðbólga muni hækka. Eðlilega hefur fólk áhyggjur af þessu og heimilin í landinu finna fyrir þessu um hver einustu mánaðamót þegar afborganir af húsnæðislánum hækka. Hver einasta búðarferð mun verða dýrari líka. En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svör og það að kalla eftir einhverjum hugmyndum um hvernig við getum gert betur. Við í Framsókn munum ekki láta okkar eftir liggja hvað það varðar og munum hugsanlega koma með eitthvað. En í þessu ljósi þurfum við samt sem áður að horfa á aðra málaflokka þrátt fyrir þennan óróleika allan, m.a. málefni barna og ungmenna. Við í Framsókn kölluðum eftir þverpólitískri samstöðu í þessum málaflokki því að þarna er grunnurinn að samfélaginu og framtíðinni lagður. Nú höfum við í raun ekki fengið svör frá hæstv. ráðherra hvað þetta varðar og það væri áhugavert að heyra hvað henni finnist um það að við séum að leggja niður pólitískar keilur og stíga upp úr skotgröfunum hvað varðar þennan málaflokk, því að þarna þarf vissulega að taka til hendinni og sýna samstöðu. Það væri áhugavert að fá að heyra hennar sjónarmið hvað það varðar.