157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

samvinna um aðgerðir í efnahagsmálum.

[13:40]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Já, það er vissulega rétt að það er fjöldinn allur af málaflokkum þar sem við stöndum frammi fyrir áskorunum í. Ég held einmitt að málaflokkur barna sé mjög víðfeðmur málaflokkur. Það eru áskoranir mjög víða. Þessi akút mál hafa kannski mest verið í fjölmiðlum og við finnum mest fyrir þeim. Við viljum auðvitað gjarnan eiga þverpólitískt samtal um þessi mál. Það eru nefndir að störfum sem hafa verið sérstaklega að taka fyrir málefni barna. Það væri auðvitað óskandi að við myndum ná árangri með þeim nefndum sem nú þegar eru starfandi á þessum vettvangi. Við erum núna komin með formann Flokks fólksins sem brennur fyrir þessu málefni inn í mennta- og barnamálaráðuneytið. Það eru tillögur að koma á næstu dögum sem varða sérstaklega fíkniúrræði og -meðferð í þeim hópum. Ég vænti þess að við fáum virka umræðu um það og ég fagna því ef Framsókn ætlar að aðstoða við þá umræðu.