157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

atvinnulíf á landsbyggðinni.

[14:09]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka fyrir fyrirspurnina. Ég hef heyrt talað um þetta. Þetta kemur reglulega upp þegar maður fer á þessi svæði. Við höfum verið að fara þær leiðir núna og heilbrigðisráðuneytið er að reyna að framfylgja hugmyndum sem höfðu reyndar komið fram einmitt hjá fyrri ráðherra um til að mynda að veita afslætti af námslánum hjá fólki sem sest að á ákveðnum svæðum. Ég verð að segja fyrir mína parta að ég geld alltaf smá varhuga við svona afsláttarglufumenningu í skattkerfinu. Það er flókið að eiga við þetta. Ég er líka almennt á þeirri skoðun að upp til hópa, þetta á ekki við um alla en upp til hópa, séu Íslendingar ekki endilega að líða skort á fjárhag heldur skort á þjónustu. Þó að þú veitir þeim aukafjármagn, ef þau komast ekki með þeim peningum í þjónustuna ertu ekkert endilega að bæta stöðu þeirra en þú ert að skerða getu hins opinbera til að veita þjónustuna. Auðvitað er þetta pólitískt grundvallarsjónarmið. Ég er bara almennt á þeirri skoðun að við þurfum að styrkja þjónustuna. Við þurfum að bæta aðgengi að henni því þó að fólk (Forseti hringir.)borgi eitthvað lægri skatta, ef það fær ekki heilbrigðisþjónustuna, það getur ekki keyrt með vöruna á milli staðanna, þá mun það ekki breyta öllu. Við eigum að reyna að nýta opinbert fjármagn betur og dreifa því betur um landið.