157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.

305. mál
[14:11]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um framkvæmd öryggisráðstafana sem einstaklingum er gert að sæta samkvæmt VII. kafla almennra hegningarlaga. Jafnframt gilda þau eftir því sem við á um aðra dómsúrlausnir sem fela í sér öryggisgæslu eða aðrar vægari öryggisráðstafanir. Frumvarpið felur í sér að ný stofnun verði sett á fót sem ber heitið Miðstöð um öryggisráðstafanir. Hlutverk stofnunarinnar verður að annast framkvæmd öryggisráðstafana auk annarra verkefna í samræmi við ákvæði frumvarpsins, svo sem að hafa eftirlit með öryggisgæslustöðum sem starfa á hennar vegum, veita ráðgjöf og faglegan stuðning til þeirra aðila sem veita skjólstæðingum þjónustu samhliða öryggisráðstöfunum og fræðslu um málefni stofnunarinnar og skjólstæðinga hennar til viðeigandi hagaðila. Samhliða framlagningu frumvarpsins hefur dómsmálaráðherra lagt fram frumvarp til laga um breytingu á VII. kafla almennra hegningarlaga í því skyni að skýra ákvæði um öryggisráðstafanir og uppfæra þau til nútímalegra horfs. Þar með verður samræmi í dómaframkvæmd aukið og ábyrgð á framkvæmd dóma verður skýr. Einnig mun ég hér á eftir flytja frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks sem felst í endurskoðun á gildandi lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Frumvörpin þrjú hafa verið unnin samhliða og ætlunin er að þingleg meðferð þeirra haldist í hendur.

Um langt skeið hefur verið ljóst að þörf sé á að taka heildstætt utan um málefni einstaklinga sem gert er að sæta öryggisráðstöfunum á grundvelli hegningarlaga. Um er að ræða einstaklinga sem fremja alvarleg brot en þannig er talið ástatt um að þeir séu ósakhæfir eða þegar refsing er ekki talin bera árangur. Eru þetta því einstaklingar sem eru ekki taldir hæfir til að vistast í fangelsi en þó er talið nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir til að hætta stafi ekki af þeim. Hér er því um afar brýnt mál að ræða. Til viðbótar við þennan hóp verður hér til úrræði fyrir þá einstaklinga sem eru að ljúka afplánun en eru enn taldir hættulegir samfélaginu og þurfa því að sæta öryggisgæslu að afplánun lokinni. Það er hópur sem kerfið hefur hingað til ekki náð utan um. Í dag er hvorki til staðar heildstæð lagaumgjörð né samræmt verklag um þjónustu við þá einstaklinga sem brotið hafa alvarlega af sér en þurfa sérhæfða þjónustu. Dómsorð hljóðar stundum á þá leið að ákærði skuli sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Stundum er kveðið á um tiltekna meðferð sem ákærði skuli sæta og stundum segir að ákærði skuli fá þjónustu í tilteknu búsetuúrræði. Af hálfu stjórnvalda hefur því ekki alltaf verið ljóst hvernig bregðast eigi við dómsúrlausn eða hver beri ábyrgð á framkvæmd hennar. Þetta hefur leitt til mikillar réttaróvissu fyrir þá einstaklinga sem gert hefur verið að sæta slíkum ráðstöfunum. Afleiðingarnar hafa verið alvarlegar. Mál hafa lent milli skips og bryggju eftir að dómar hafa fallið og einstaklingar hafa verið án eftirlits, nauðsynlegrar þjónustu og stuðnings þrátt fyrir að dómur kveði á um öryggisráðstafanir. Auk þess er ekki alltaf tryggt að ráðstafanir vari ekki lengur en nauðsyn krefur. Þessu erum við núna að breyta.

Undanfarið ár hefur starfshópur sjö ráðuneyta unnið að samhæfingu úrbóta á úrræðum og þjónustu fyrir einstaklinga sem nauðsynlegt þykir að sæti sérstökum öryggisráðstöfunum. Í hópnum eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti. Starfshópurinn kortlagði helstu úrbætur sem hópurinn taldi brýnt að ráðast í. Í tillögum hópsins, sem kynntar voru í apríl árið 2025, kom fram að æskilegt væri að frumvarpsdrög þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra um öryggisráðstafanir og öryggisvistun, sem kynnt voru í samráðsgátt stjórnvalda árið 2022, yrðu tekin upp að nýju. Það hefur nú verið gert og á grundvelli breytts samráðs og samtals við hagaðila er frumvarp þetta lagt fram. Helstu markmið þess eru í fyrsta lagi að tryggja mannréttindi og réttaröryggi fyrir þá einstaklinga sem gert er að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn, í öðru lagi að varna því að hætta verði af viðkomandi einstaklingi og tryggja þannig öryggi og almannahagsmuni, í þriðja lagi að skýra verkferla og ábyrgð stjórnvalda og í fjórða lagi að tryggja samræmda framkvæmd og þjónustu við einstaklinga sem sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn.

Frú forseti. Frumvarp það sem hér er lagt fram fjallar um framkvæmd öryggisráðstafana. Til öryggisráðstafana teljast annars vegar öryggisgæsla og hins vegar vægari öryggisráðstafanir. Öryggisgæsla felst í því að viðkomandi einstaklingur er vistaður á þar til bærum stað og getur hún farið fram á mismunandi stöðum. Öryggisgæslan getur falist í innlögn á viðeigandi heilbrigðisstofnun þar sem veitt er réttar- og öryggisgeðþjónusta sem í dag er veitt á réttargeðdeild Landspítalans. Hún getur einnig falist í vistun í öryggisgæslu á vegum nýrrar stofnunar, Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, eða á vegum aðila sem Miðstöð öryggisráðstafana er heimilt að semja við, þ.e. sveitarfélög og einkaaðila. Sé einstaklingi gert að sæta vægari öryggisráðstöfunum þarf hann ekki að sæta öryggisgæslu eða vistast á þar til gerðum stað. Í slíkum öryggisráðstöfunum getur m.a. falist eftirlit, þar með talið rafrænt eftirlit, fyrirskipuð meðferð, svo sem geðmeðferð eða ákvörðun dvalarstaðar, vinna og umgengni við ákveðna einstaklinga. Hér gæti einnig verið um að ræða bann við notkun áfengis, vímuefna og lyfja sem og aðrar ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að varna því að hætta stafi af einstaklingi og sem hæfa honum miðað við þarfir hans og ástand. Með frumvarpi þessu og með breytingum á almennum hegningarlögum er ætlunin að tryggja að í dómsorði sé kveðið eins skýrt og unnt er á um á hvaða öryggisgæslustað einstaklingur skuli vistast og hvaða vægari öryggisráðstöfunum hann skuli sæta hverju sinni.

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt frá því að segja að almenn sátt ríkir um efni þessa frumvarps, enda er það unnið í miklu samráði við helstu hagaðila. Það byggir á mannréttindamiðaðri nálgun með áherslu á þjálfun og endurhæfingu einstaklinga sem hafa brotið alvarlega af sér með það að markmiði að auka hæfni þeirra. Nýtt öryggisgæsluúrræði mun vera heimilislegt og vistlegt um leið og þar verður hámarksöryggi. Til að samnýta þær auðlindir sem við höfum í mannauði og reynslu hefur úrræðinu verið tryggð lóð á Hólmsheiði en þann 24. nóvember síðastliðinn skrifuðu þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra og borgarstjóri undir viljayfirlýsingu um að tryggja ríkinu lóð undir hina nýju fyrirhuguðu stofnun í landi Reykjavíkurborgar á Hólmsheiðarsvæðinu. Gert er ráð fyrir fjármagni vegna byggingar húsnæðis fyrir öryggisgæslu og til rekstrar Miðstöðvar um öryggisráðstafanir í fjármálaáætlun 2026–2030. Alls eru rúmlega 3 milljarðar áætlaðir til hönnunar og byggingar stofnunarinnar. Gert er ráð fyrir 600 millj. kr. viðbótarfjármagni í rekstur hennar árið 2027 og síðan árlega 1.200 millj. kr. framlagi eftir það. Um er að ræða viðbót við núverandi fjárheimild sem nemur um 617 millj. kr. Til viðbótar er gert ráð fyrir 2 milljörðum í almennan varasjóð vegna tímabundinna ófyrirséðra úrræða og þjónustu fyrir einstaklinga sem gert er að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn.

Brýn þörf er á að bæta lagarammann í þessum málaflokki. Eftirlitsnefndir með pyndingarsamningum Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins hafa bent á að bæta þurfi úr annmörkum laga hvað varðar öryggisráðstafanir. Þá hefur umboðsmaður Alþingis ítrekað bent á nauðsyn lagasetningar á þessu sviði. Horft hefur verið til ábendinga þessara aðila við gerð frumvarpsins, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga og má þar nefna mannréttindasáttmála Evrópu, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þannig er mikil áhersla lögð á að tryggja að einstaklingar sem sæta þurfi öryggisráðstöfunum fái þjónustu, þ.e. ráðgjöf, stuðning, þjálfun og meðferð, í samræmi við þarfir þeirra hverju sinni með það fyrir augum að auka hæfni þeirra og stuðla að farsælli endurhæfingu og aðlögun að samfélaginu. Þá skal tryggja að inngrip í réttindi einstaklinga verði hvorki umfangsmeiri né standi lengur en nauðsyn ber til.

Lagafrumvarp þetta varðar mörg svið. Það hefur snertifleti við réttarvörslukerfið vegna einstaklinga sem gert er að sæta öryggisráðstöfunum vegna refsiverðs verknaðar. Það varðar heilbrigðiskerfið og málefni fatlaðs fólks þar sem um er að ræða einstaklinga sem eru ósakhæfir eða refsing er ekki talin líkleg til að bera árangur. Oft er um einstaklinga að ræða sem þurfa á sérhæfðri þjónustu að halda vegna geðræns vanda og í sumum tilfellum vegna fötlunar. Því er samhæfing og samstarf milli ráðuneyta og stofnana þeirra, sem og á milli ríkis og sveitarfélaga, lykilatriði við framkvæmd frumvarpsins.

Frumvarpið er liður í að framfylgja samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk frá árinu 2023 þar sem fram kom að kannaður yrði fýsileiki þess að þjónusta við einstaklinga sem gert væri að sæta öryggisráðstöfunum yrði á ábyrgð ríkisins. Í umsögnum sveitarfélaga kemur fram að verulegur kostnaður sé af þjónustu við þennan hóp í dag og því ætti samhliða breyttri framkvæmd að myndast aukið svigrúm hjá sveitarfélögum. Gert er ráð fyrir aðkomu viðkomandi ráðuneyta, sveitarfélaga og stofnana að þjónustunni, bæði í gegnum fagráð nýrrar stofnunar og þverfaglegt matsteymi sem fjallar um málefni skjólstæðinga hennar.

Frú forseti. Það frumvarp sem ég legg hér fram er bæði mikilvægt og löngu tímabært. Það hefur verið unnið í miklu og góðu samráði við alla hagaðila, hagsmunasamtök, stofnanir, sveitarfélög og ráðuneyti. Almenn sátt er með efni frumvarpsins sem miðar annars vegar að því að tryggja réttindi einstaklinga sem gert er að sæta öryggisráðstöfunum og hins vegar að því að tryggja öryggi samfélagsins.

Að lokinni umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.