atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynningu hans á þessu máli. Lög um atvinnuleysistryggingar og breytingar á þeim eru afar stórt mál eins og þetta er sett upp hérna og margt mjög gott sem þarna kemur fram sem hægt er að taka undir. Það markmið að stytta atvinnuleysistímabilið er góðra gjalda vert og skýr áhersla lögð á að auka eigi virkniúrræði og slíkt, sem er að mínu mati akkúrat eins og velferðarkerfið á að virka. Við eigum að ýta undir það og styðja fólk í að komast aftur til starfa og þessi stytting úr 30 mánuðum í 18 er, eins og ég segi, eitthvað sem er bara gott að sé verið að vinna að. En svo eru það einmitt leiðirnar að því hvernig þetta er gert. Það kemur fram í fjölda umsagna sem um málið hafa birst í samráðsgátt að það eru alls konar áhyggjur sem eru þar tilgreindar, eins og við mátti búast í svo róttæku máli, eins og einn komst að orði í einni umsögninni: Þetta eru róttækar aðgerðir.
Það er rétt sem kom fram í máli hæstv. ráðherra að Samband íslenskra sveitarfélaga leggst ekki gegn því að þetta fari svona í gegn en brýnir fólk til þess að taka það til endurskoðunar og meta að tilteknum tíma liðnum. Engu að síður hefur höfuðborgin okkar, Reykjavíkurborg, sent inn dálítið harðorða umsögn og ég veit að það eru svipaðar áhyggjur í öðrum stórum sveitarfélögum. Til dæmis er umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi sem tekur í svipaðan streng (Forseti hringir.) og Reykjavík þar sem það lýsir yfir verulegum áhyggjum af áhrifum þessa á fjárhag (Forseti hringir.) sveitarfélagsins. Hvernig vill hæstv. ráðherra bregðast við þessu? (Forseti hringir.) Þarna er nú höfuðborgin sem er mjög stór í þessum málaflokki. Hvernig vill (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra bregðast við umsögn þeirra og áhyggjum?
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma sem er tvær mínútur.)