157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir.

312. mál
[15:03]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir góða spurningu. Sú gagnrýni sem hefur komið úr ranni verkalýðshreyfingarinnar er málefnaleg og á fullkomlega rétt á sér. Hún er skiljanleg. En ég vænti þess að við séum sammála, og ég er að tala um bæði mig og okkur í stjórnarmeirihlutanum og örugglega flesta hér á þinginu, um að það þurfi að breyta þessu kerfi og fara í meiri og skilvirkari virkniúrræði til þess að koma fólki og styðja það betur við að komast út á vinnumarkaðinn en vera ekki of lengi inni í kerfinu. Ég man t.d. þegar við vorum að skoða á sínum tíma mikið áhlaup á sjúkrasjóði stéttarfélaga þar sem sjúkrarétturinn var um níu mánuðir og það fannst fólki of langur tími til þess að vera ekki í virkni, sérstaklega ef fólk var að glíma við álagstengda kvilla. Ég held því að það sé enginn ágreiningur innan hvorki verkalýðshreyfingarinnar né samfélagsins um að þetta langur tími án virkni sé ekki ásættanleg staða að vera í.

Þess vegna legg ég mikla áherslu á það, þar sem ég er nýtekinn við þessum málaflokki og þessu ráðuneyti, að fara í samráð og samtal við verkalýðshreyfinguna og leggja ofuráherslu á að við förum í myndarlegt átak, virkniátak í samráði og samvinnu við bæði VIRK — Starfsendurhæfingarsjóð, sem við þekkjum auðvitað vel, og Vinnumálastofnun. Það samráð mun eiga sér stað um leið og þetta mál verður klárað. Ég treysti líka auðvitað hv. (Forseti hringir.) velferðarnefnd til þess að vinna málið vel, taka tillit til allra umsagna og komast að góðri niðurstöðu.