atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra Ragnari Þór Ingólfssyni fyrir framsöguna og fyrir að koma með þetta mál hérna inn núna. Það er vissulega þörf á að breyta og skerpa á lögum um atvinnuleysistryggingar og inni í því er t.d. ýmiss konar tiltekt sem á þarf að halda, eins og að leggja niður Atvinnuleysistryggingasjóð sem hefur í raun og veru ekki verið til lengi.
Af því að hæstv. ráðherra var að tala rétt í þessu um hvernig verkalýðshreyfingin kemur að þessum málum og það er bæði þessi lengd bótaréttar, sem er styttur úr 30 mánuðum í 18, og ég held að það sé bæði vel sett fram í rannsóknum og öðru að ef þú ert kominn í atvinnuleysi í meira en 18 mánuði eru mjög miklar líkur á að þú lendir í langvarandi örorku og vanvirkni. Líkurnar eru gríðarlegar með hverjum mánuði sem líður þannig að það er gríðarlega jákvætt að við förum í mjög mikil virkniverkefni. Í því sambandi vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvað það er nokkurn veginn: Fær Vinnumálastofnun þá aukið fjármagn með þessu í að setja þessi virkniverkefni í gang? Og ef hann gæti skýrt það aðeins betur, sérstaklega þetta með námsþættina.
Hitt sem mig langaði aðeins til að nefna er að við erum að lengja ávinnslutímann mjög mikið. Íslenskur vinnumarkaður hefur verið þannig að vinnuveitendur hafa í raun og veru komist upp með að hafa stuttan tíma og svo fari fólk á atvinnuleysisbætur. Mig langaði aðeins til að spyrja ráðherra hvort það stæði til í ráðuneytinu að vinna jafnframt þessu einhverja vinnu í sambandi við það. Ég veit að þetta er ekki lengur eitthvað sem vinnuveitendur geta gert en hvernig ætlum við að verja launþega gagnvart þessu?