157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir.

312. mál
[15:08]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi virkniúrræði er nú þegar búið að bæta við og eyrnamerkja 200 millj. kr. til Vinnumálastofnunar á þessu ári í aukin virkniúrræði. Það er auðvitað byrjunin og vonandi getum við fundið fleiri og frekari leiðir til að styðja enn betur við þá hópa sem þurfa að komast í meiri virkni og fá meiri stuðning. Við þurfum auðvitað líka að horfa til svæðisbundins atvinnuleysis eins og stöðunnar á Reykjanesi, sem er grafalvarleg. Þar er líka eftirspurn eftir vinnuafli þrátt fyrir að atvinnuleysi sé mjög mikið og staðbundið þannig að það er verk að vinna.

Ég hlakka til að eiga þetta samtal við mína gömlu félaga í verkalýðshreyfingunni og atvinnulífið líka vegna þess að þetta er og þarf að vera samstarfsverkefni ef okkur ætlar að takast að gera vel og ná árangri í þessum málaflokki sem er mikil þörf á. Ég mun því mjög fljótlega leggjast yfir það nákvæmlega hvaða leiðir við sjáum fyrir okkur og í það minnsta munu allir aðilar koma að því borði sem einhverju máli geta skipt.