föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Það er sérstakt að lenda með málið í miðjum handboltaleik en vonandi fáum við góða umræðu um þetta mál. Málið sem hér er verið að ræða er tillaga til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Ásamt þeim sem hér stendur eru tíu aðrir hv. þingmenn, sem sagt ellefu þingmenn, á málinu. Málið snýst um að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila á Akureyri.
Tillagan sem hér er rædd hefur verið lögð áður fram, síðast á 156. löggjafarþingi, þá 41. mál, en varð ekki afgreidd. Þetta er í fjórða skipti sem málið er lagt fram hér í þinginu. Með tillögunni er lagt til að ein af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands hafi starfsstöð á Akureyri allt árið um kring. Auk þess sem Akureyri er miðsvæðis á landinu er augljós tenging við sjúkraflugið í landinu sem er staðsett á Akureyri. Þar geta læknar á Akureyri mannað hluta þyrluáhafnar eins og nú er reyndin í tengslum við sjúkraflugið með flugvélum. Í þessu samhengi er rétt að benda á að í fjölmiðlum hefur komið fram að tveir af sex þyrluflugstjórum Gæslunnar búa fyrir norðan. Talið er að árlegur rekstrarkostnaður þyrlu á Akureyri sé um 500 millj. kr. og að uppbygging flugskýlis á Akureyrarflugvelli kosti 200–300 millj. kr. Nú þegar eru til staðar flugvirkjar sem geta sinnt viðhaldi auk þess sem starfsmenn í heilbrigðisstofnunum, slökkviliði og fleiri starfsmenn geta nýst starfseminni. Þetta þýðir raunverulega að það eru allir innviðir til staðar og mannskapur. Þetta er í raun eini staðurinn á landsbyggðinni sem hefur raunverulega alla þessa þætti sem snúa að innviðum og starfsmannahaldi sem þyrfti að koma að slíkri starfsemi sem er auðvitað mjög sérhæfð.
Hlutfall þyrluflugs hefur verið um 15% af heildarsjúkraflugi í landinu. Norlandair síðustu tvö ár og Mýflug þar á undan um árabil hafa sinnt um 85% af sjúkrafluginu með flugvélum sínum. Það er gott að hafa þessa mynd í tillögunni af sjúkraflutningum í landinu, sjá hvernig hlutföllin eru. Það er nú þannig að sjúkraflugi í landinu verður ekki bara sinnt með þyrlum, svo það sé sagt, þetta er bara til að tryggja enn betur viðbragð og auðvitað leit og björgun við erfiðar aðstæður eins og á hafi úti, á hálendi og við erfiðar aðstæður víða í fjalllendi. Með þingsályktunartillögunni, a.m.k. í PDF-skjalinu, er mynd sem sýnir með myndrænum hætti hvernig sjúkraflug í landinu fór fram árið 2015 og hvert þyrlur Gæslunnar sóttu sjúklinga. Á þeirri mynd má sjá að raunverulega hafa þyrlur Gæslunnar verið mest notaðar á suðausturhorninu, í næsta nágrenni, kannski eins klukkutíma flugi út frá höfuðborginni, en hafa síður nýst á svæðum sem eru fjær, svo sem á norðurhluta landsins, Austurlandi og á hafsvæðunum þar norður af. Það má sem sagt sjá hversu slæma og lélega þjónustu hægt er að veita á austurhluta landsins þegar sjúkraflugi með þyrlum er einungis sinnt á Reykjavíkurflugvelli. Það er það sem myndin sýnir.
Fjarlægðir eru miklar og veðuraðstæður með þeim hætti að til að sinna sjúkraflutningum á austurhluta landsins með sjúkraþyrlum, í þeim tilfellum þar sem erfitt er að koma sjúkraflugi við, yrði nauðsynlegt að staðsetja þyrlu á svæðinu. Það er ekki langt síðan sjöttu þyrluáhöfninni var bætt við hjá Landhelgisgæslunni sem þýðir að tvær áhafnir eru á vakt um tvo þriðju hluta ársins. Með því að bæta við sjöundu þyrluáhöfninni væru tvær áhafnir til reiðu 95% af árinu. Það er mikilvægt skref sem nauðsynlegt er að stíga til þess að efla björgunargetu þyrluflugsveitar Landhelgisgæslunnar.
Aðeins um áhættudreifingu. Það er ekki skynsamlegt að hafa öll eggin í sömu körfunni þegar kemur að eldsvoða, vatnstjónum og öðrum mögulegum skakkaföllum. Að hafa allar þyrlur fastar á sama veðurfarssvæði er óskynsamlegt. Að hafa þyrlur eingöngu staðsettar í Reykjavík dreifir illa þjónustu, sérstaklega er það afleitt fyrir Norðausturland og Austurland og hafsvæði þar út af eins og sjá má á mynd sem fylgir með. Með þyrlu í Reykjavík og á Akureyri mætti ná til allra landshluta á þyrlu á innan við 90 mínútum á venjulegum degi og myndi björgunarviðbragð á norður- og austurmiðum styrkjast verulega.
Það sjónarmið að hafa þyrlu á Akureyri hefur einnig komið fram í ýmsum skýrslum. Vinnuhópur um skipulag sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan spítala á Norðurlandi benti árið 2009 á þann veikleika sem felst í því að allar björgunarþyrlur þjóðarinnar séu staðsettar í Reykjavík. Annar verkefnahópur um endurskipulagningu sjúkraflutninga taldi árið 2012 að stefna ætti að því að sjúkraflug með þyrlum og flugvélum yrði bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Þegar byggja átti upp þyrluflota Landhelgisgæslunnar við brottför varnarliðsins árið 2006 ályktuðu ýmis samtök og stofnanir um að skynsamlegt væri að hafa fleiri en eina starfsstöð á landinu fyrir björgunarþyrlur til að stytta björgunartímann. Landspítali í Reykjavík benti á að í ljósi mikilvægis jöfnunar á heilbrigðisþjónustu landsmanna skyldi þyrla vera staðsett á Akureyri. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands tóku m.a. undir það. Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar hvatti einnig til þess að tryggð yrði staðsetning björgunarþyrlu annars staðar en á suðvesturhorninu. Samtök útgerðarmanna vildu þyrlu á landsbyggðinni til að auka öryggi og margfalda þjónustugetu. Segja má að rökin að baki þessum ályktunum gildi enn í dag.
Undanfarið hafa aðalvarðstjóri lögreglunnar á Akureyri og forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri tjáð sig um mikilvægi þess að þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri eftir að þyrla var staðsett á Akureyri um verslunarmannahelgina fyrir tveim, þrem árum og sýndi gríðarlega mikið notagildi. Það gæti jafnframt valdið jákvæðum ytri áhrifum, svo sem betri hreyfanleika sérsveitar og myndi styðja við sjúkralið og lögreglu á svæðinu. Það hefur einmitt komið nokkuð á óvart þegar þetta mál hefur verið rætt áður að raunverulega lítur sérsveit ríkislögreglustjóra á þetta sem mikilvægt mál, út frá hreyfanleika sérsveitar frá Akureyri og sérsveitarmanna þar.
Svo er rætt hér líka í þingsályktunartillögunni samstarf við vinaþjóðir á norðurslóðum. Þetta er kannski sá hluti sem hefur breyst alveg gríðarlega núna á örskömmum tíma og sýnir mikilvægi málaflokksins í allri þeirri heimspólitík sem er í gangi núna. Það kemur fram í þingsályktunartillögunni að á undanförnum árum hefur Atlantshafsbandalagið, NATO, lagt meiri áherslu á viðveru af hálfu bandalagsins í norðanverðu Norður-Atlantshafi til að efla styrk bandalagsins á norðurslóðum.
Að mati flutningsmanna er eðlilegt að líta til þess að á næstu árum efli íslenska ríkið getu sína til að sinna leit og björgun á hafsvæðinu í kringum Ísland. Nú þegar mikilvægi norðurslóða er að aukast er rétt að líta til þess hvernig hægt væri að styrkja þessa starfsemi hér á landi og jafnvel í samstarfi við vinaþjóðir innan Atlantshafsbandalagsins. Hér er rétt að líta til þess að Danir hyggjast í þessu skyni verja 1,5 milljörðum danskra króna eða um 30 milljörðum íslenskra króna. Þar er m.a. horft til þess að endurnýja þau fjögur varðskip sem þeir hafa haldið úti á Norður-Atlantshafi.
Í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum sem kom út árið 2022 kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og gera ráðstafanir til þess að tryggja vöktun betur. Svæðið sem Landhelgisgæslan ber ábyrgð á spannar 1,9 milljónir ferkílómetra og er svæðið nítján sinnum stærra en Ísland, næstum því jafn stórt og Grænland, til að fá samanburðinn í stærðum, en það er 2,1 milljón ferkílómetrar.
Það er gríðarlega mikilvægt að byggja upp og auka björgunargetuna og flutningsmenn telja skynsamlegt að efla leitar- og björgunargetu á norðausturhluta landsins með því að staðsetja varanlega björgunarþyrlu á Akureyri líkt og þekkist á höfuðborgarsvæðinu.
Freyja með heimahöfn á Siglufirði var stórt skref í að efla björgunargetu Landhelgisgæslunnar og sérstaklega á hafsvæðunum norðan og austan við Ísland. Nú er rétt að líta til þess að staðsetja varanlega þyrlu á Akureyri og byggja upp öfluga starfsstöð á Norðurlandi.
Þegar varnarliðið yfirgaf Ísland árið 2006 dró verulega úr björgunargetu hér á landi með þyrlum en á sínum tíma voru fimm þyrlur staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Mikil vinna hefur verið lögð í að styrkja þetta viðbragð. Flutningsmenn telja skynsamlegt að efla björgunargetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á Norður- og Austurlandi og á hafsvæðunum þar út af með því að staðsetja björgunarþyrlu varanlega á Akureyri.
Skynsamlegt væri og í anda opinberrar stefnumörkunar og byggðafestu að byggja upp leitar- og björgunargetu á norðurslóðum við Eyjafjörð. Þar ætti að staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu.
Þannig endum við þingsályktunartillöguna. Ég vildi koma síðan aðeins að umræðu um málið. Áður hafa komið mjög margar og góðar umsagnir við þetta mál, fjöldinn allur af þeim, í þau skipti sem tillagan hefur verið lögð fram. Landhelgisgæslan hefur ítrekað sent umsögn í tengslum við málið og þar kemur fram, með leyfi forseta:
„Landhelgisgæsla Íslands áréttar að stofnunin telur að föst starfsstöð björgunarþyrlu á Akureyri yrði stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis-, eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Með því myndi neyðar-, sjúkraflutnings- og viðbragðsgeta við íbúa Vestfjarða, Norður- og Austurlands og sjómenn stóraukast. Einnig myndi þjónusta við ferðamenn á hálendinu batna til muna. Landhelgisgæslan bendir enn fremur á að aukin viðbragðsgeta myndi styrkja getu stofnunarinnar til að sinna öryggis- og varnartengdum verkefnum.“
Þetta er úr umsögn frá 10. apríl í fyrra. Það hefur líka komið fram í umsögnum og í fréttum af málinu að Landhelgisgæslan hefur talað um það sem byltingu í leit og björgun á Íslandi ef þetta yrði að veruleika. Þetta er hluti af því að efla áfallaþol og viðnámsþrótt samfélagsins og að við Íslendingar tryggjum það á því svæði sem við stjórnum í Norður-Atlantshafi, sem er 1,9 milljónir ferkílómetra, með viðunandi og öflugum hætti með því að efla getu Landhelgisgæslunnar á þessu sviði. Eins og umræðan hefur þróast frá því að þessi tillaga var fyrst lögð fram 2023, frekar en 2022, þá hefur náttúrlega öll umræða um þessi málefni sem snúa að norðurslóðum, norðanverðu Norður-Atlantshafinu, gjörbreyst, jafnvel þótt við lítum bara nokkrar vikur eða mánuði aftur í tímann. Það hefur orðið gjörbreyting á allri umræðu hvorum megin við hafið, hvort sem það er meðal aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins, í Bandaríkjunum, hjá Evrópusambandinu eða öðrum þjóðum, t.d. Bretum og Norðmönnum. Það er skoðun þess sem hér stendur að það sé fátt annað sem hentar raunverulega betur þegar við tölum um einhvern málaflokk sem gæti verið hluti af þessum 1,5% sem er talað um í tengslum við Atlantshafsbandalagið og gæti verið það sem aðildarþjóðirnar leggja raunverulega til, til þess að efla áfallaþol og viðnámsþrótt samfélaganna, 1,5% sem Íslendingar hafa staðfest, núverandi ríkisstjórn, að verði klárað fyrir 2035 meðan aðrar þjóðir Atlantshafsbandalagsins ætla að fara upp í 5%. Þessi tvíhliða notkun í þessum 1,5% gæti fallið undir þetta. Ég tel fá önnur mál á Íslandi geta fallið betur undir þá skilgreiningu sem átt er við hvað varðar 1,5%. Þetta tengist meira að segja loftrýmisgæslu og slíkum hlutum, að hún geti farið fram úti á hafi, fari ekki bara fram yfir Íslandi. Það er einn af þáttunum t.d. sem brugðust þegar herinn fór 2006. Loftrýmisgæslan hefur lítið verið yfir hafi síðan þá. (Forseti hringir.) — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.