föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni og framsögumanni fyrir framlagningu þessa máls. Við áttum hér ágætissamtal um þetta fyrir rétt um ári síðan þegar málið var flutt og ég ætla ekki að fara djúpt í aðkomu mína að þessu sem er orðin ansi löng, ekki hér inni í þingsal reyndar en annars staðar. Ég segi bara eins og ég sagði síðast, að ég er jafn hissa núna og þá á því að það sé ekki löngu búið að koma þessu í framkvæmd. Ég mun alla vega leggja mitt af mörkum til þess að það verði hægt að klára þetta á þessu kjörtímabili.
Spurning mín til hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar snýr, eða átti að snúast, í rauninni um NATO-aðkomuna. Hann fór ágætlega í gegnum þetta hérna í lokin en mig langar aðeins að heyra varðandi reynsluna, vegna þess að það var mjög mikið gæfuspor þegar ákveðið var að Freyja yrði með heimahöfn á Siglufirði, hvort hann hafi þekkingu eða upplýsingar um það hvernig reynslan af því hafi verið, þekkjandi kjördæmið vel. Þá er ég ekki endilega að tala um það sem er atvinnutengt heldur einfaldlega varðandi öryggisþáttinn. Hann er mér mjög hugleikinn varðandi þetta verkefni og við verðum að hafa það í huga að það eru gríðarlegar siglingar hér fyrir norðan haf og viðbragðið verður að vera fljótt og öruggt. Þannig að ef hv. þingmaður getur eitthvað upplýst okkur hér í þessum þingsal um það hvernig hafi tekist með skipið á Siglufirði sem er mjög mikilvægt í tengslum við þetta verkefni, líka varðandi þyrluflug.