157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

16. mál
[15:30]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir svarið. Mig langar að taka undir, varðandi þetta með Freyju og skipið, að þetta tengist allt saman vegna þess að það auðvitað eflir öryggisþáttinn á svæðinu.

Það er eitt í umræðunni sem mér fannst vanta áðan í kynningunni og reyndar kom fram í umræðum okkar síðast, á síðasta ári, að það er mjög mikilvægt að hafa Sjúkrahúsið á Akureyri og aðra innviði sem eru til staðar á Akureyri til að styrkja þetta verkefni. En þetta snýst líka í hina áttina. Þetta styrkir að sjálfsögðu líka innviðina á Akureyri, þ.e. að þar komi öflug þjónusta, sem er mjög mikilvægt. Í rauninni er núna í seinna andsvari mínu svo sem engin sérstök spurning heldur einfaldlega að þetta mikilvæga verkefni eflir ekki bara björgun og varnir okkar á norðurslóðum og um land allt heldur líka innviði og uppbyggingu á Akureyri og Norðurlandi öllu.