157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

16. mál
[15:32]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir framsöguna og fyrir að leggja þetta mál fram. Ég hef tekið þátt í því á öðrum vettvöngum en hér að álykta um mikilvægi þessa máls; að við höfum öfluga björgunargetu um allt land. Þyrla staðsett á Akureyri er klárlega eitt af því sem margoft hefur verið rætt og ég er sammála því að það er mikilvægt að við hugum að því hvort við getum ekki gert það. Á sama tíma held ég að það sé mikilvægt fyrir okkur aðeins að stíga skref aftur á bak, að horfa á Landhelgisgæsluna í heild sinni, ýmis verkefni og ýmsar áskoranir. Þeir hafa verið aðeins á hrakhólum með hafnaraðstöðu hér á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið talað um að flytja skipaflotann til Reykjaneshafnar sem býður þar frábæra aðstöðu og það hefur verið talað um sjúkraþyrlu á Suðurlandi og meira og það eru fleiri svona hlutir í þessu. En ég held að það væri mjög öflugt skref að gera þetta og mun styðja að þetta fari til skoðunar þannig að ég vona að við fáum þetta til afgreiðslu fljótlega.

Spurningin til þingmannsins er kannski svolítið um þessi öryggissjónarmið og tenginguna við sjúkraflugið, hvort hann sjái fyrir sér að t.d. þeir læknar sem eru á Sjúkrahúsinu á Akureyri og manna sjúkraflugið yrðu þjálfaðir upp í það að sinna þeim verkefnum fyrir Gæsluna fyrir norðan eða hvort við værum að færa lækna á milli landshluta. Það er svo sem ekkert endilega neitt verra, að vera með öfluga lækna sem hafa þessa sérhæfingu sem læknar þyrlunnar hafa í dag því það er auðvitað kostnaður, vinna og binding í því fyrir læknana fyrir norðan að taka að sér þetta verkefni að auki.