157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

16. mál
[15:34]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég byrja á að þakka hv. þingmanni Víði Reynissyni fyrir þessar spurningar. Það er rétt að auðvitað þarf að leysa málefni Landhelgisgæslunnar í stærra samhengi almennt, með aðstöðu og annað. Ég hef trú á því að það hljóti að vera gert á næstu árum og að það sé mikill vilji í þinginu fyrir því að gera það.

Þetta voru margar spurningar. Það er hægt að fara djúpt í svo margar en ég veit ekki, sjúkraflug á Suðurlandi er svolítið sér dæmi með lítilli sjúkraþyrlu sem væri þá, eins og ég skil málið, ekki hluti af Gæslunni. Við vitum af hverju vélarnar sem Gæslan notar í dag eru svona stórar. Það er svo að hún geti flogið, minnir mig, 180 sjómílur út fyrir strendur og sótt hálfan togara, tíu manns. Það er grunnurinn að þessum stóru þyrlum sem eru á Íslandi í dag hjá Gæslunni. Það gæti farið í aðra umræðu líka.

Varðandi öryggissjónarmiðin þá eru þau klár. Síðan sjúkraflugið hófst með mönnun lækna með formlegum hætti frá Akureyri, minnir mig árið 2002, fyrir rúmum 20 árum, þá er þetta hugsað þannig að það gæti að mörgu leyti verið sami mannskapur sem væri bæði í sjúkraflugvélunum og um borð í þyrlunum. Og það er nú þannig að læknar á Akureyri hafa sumir verið einmitt í þyrlum Landhelgisgæslunnar að sinna skyldum þar. Það er reyndar mikil reynsla innan starfsmanna sjúkrahússins á þessu sviði. Það kom á óvart þegar sá sem hér stendur fór aðeins ofan í málið hvað margir höfðu komið að þessu og verið í þessu umhverfi. Allir innviðir, mannskapur og annað, þetta liggur einhvern veginn ljóst fyrir og með öflugum og góðum hætti er hægt að manna.