föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og andsvarið. Þetta mál hér í þinginu er ekkert voðalega gamalt. Ég held, og mig minnir að ég hafi sagt það í ræðu minni áðan, að það hafi kannski verið þingveturinn 2022–2023, svona eftir minni, sem það kom fram. Ætli við séum ekki búin að ræða það tvisvar, þrisvar hérna í þingsal, komið fram með það á hverju þingi síðan? Það er rétt að það er gríðarlega mikilvægt sem kemur fram hjá hv. þingmanni að norðurslóðirnar eru ekkert að fara frá okkur og þau mál eru að ágerast og eru að gerast rosalega hratt þessi misserin. Þannig að vægið fer mjög hratt upp á svo mörgum hlutum sem tengjast norðurslóðum, hvort sem það er björgunargetan, leit og björgun, eða það sem er að gerast í flutningum um hafið almennt og það sem þarf að fylgjast betur með, skemmtiferðaskipin t.d., sækja sjúklinga, það er töluvert af því. Tímaramminn í umræðunni um 1,5% er að það á að skilgreina þessi 1,5% núna á næstu mánuðum. Ég held að innan Atlantshafsbandalagsins eigi að vera komið eitthvað um þetta núna í mars eða apríl. Þannig hefur verið talað um þetta síðan í haust eða síðasta vor, eða eftir Haag, þegar þetta er ákveðið, sem var fundurinn í júní í Haag varðandi 5% og svo 1,5%. Þetta eru 77 milljarðar, 1,5% af landsframleiðslu. Á tíu árum, til 2035, á það allt að vera komið fram. Við erum kannski að tala um, ef við færum bara í 500–800 milljónir á ári, kostnaðurinn á þessum árum, fyrir utan að byggja flugskýli. Þannig að þetta mál er bara smábrot í sjálfu sér. (Forseti hringir.) Hins vegar tek ég undir það sem kom fram hjá hv. þingmanni. Auðvitað þurfum við að skoða öll málefni Gæslunnar í samhengi og efla þá getu stofnunarinnar (Forseti hringir.) til að sinna hlutverkinu.