föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Frú forseti. Það er nákvæmlega málið að þetta eflir Ísland í heild sinni. Varðandi veðurfarssvæði og annað, ég þekki það mjög vel úr mínu fyrra starfi hvað þetta getur verið mismunandi á milli landsvæða og hversu ólíkt veður getur verið á mismunandi svæðum. Það er hægt að sinna Vestfjörðum nánast með nákvæmlega sama hætti frá Akureyri og Reykjavík varðandi fjarlægðir og annað, sem dæmi, og auðvitað er nóg að draga aðeins hring í kringum Akureyri varðandi hálendið. Reykjavík hefur raunverulega ekki jafn stóran hluta af hálendinu, bara ef flugdrægið og annað, 90 mínúturnar eða 60, er dregið út frá þessum tveimur stöðum, og það er náttúrlega hluti af ástæðunni fyrir því að sjúkraflugið er á Akureyri. Landfræðilega er það miklu meira miðsvæðis gagnvart fjarlægðum í landinu. Þannig að það er nákvæmlega sama með (Forseti hringir.) það að geta komið úr tveimur áttum að björgun á hálendi eða annars staðar í kringum landið. Þessi punktur skiptir mjög miklu máli.