157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hafnar.

329. mál
[16:02]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir að koma og bera upp þessa tillögu. Hún kemur hér beint inn í nýframlagða samgönguáætlun og það er nú svolítið þannig að það má eiginlega segja um Norðausturkjördæmi og ekki síst kannski Austfirði og Austfirðingafjórðung að það er svolítið fjórðungurinn sem ríkisstjórnin gleymdi. Þessi tillaga kemur þar inn. Það eru tvær vegaframkvæmdir á Austfjörðum sem eru svo mikilvægar fyrir Austfirðinga, þ.e. Öxi, eins og hv. þingmaður kemur inn á, og Suðurfjarðavegur sem er að mati Vegagerðarinnar og sérfræðinga talinn og metinn einn hættulegasti vegkafli á landinu í dag. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann, og ég þykist svo sem vita svarið, en gott að gefa hv. þingmanni tækifæri á að koma hingað upp og tjá sig um málið, hvort það sé þá ekki hægt að treysta á það að hv. þingmaður muni styðja það og hvetja sinn fulltrúa í umhverfis- og samgöngunefnd til þess að styðja það að þessar tvær brýnu vegaframkvæmdir á Austfjörðum verði fluttar framar af því að t.d. bæði Suðurfjarðavegurinn og Öxi eru bara einhvers staðar aftast. Það eru smá peningar í augsýn til að byrja með og síðan líður eiginlega allt samgönguáætlunartímabilið þangað til stóru peningarnir koma.