framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hafnar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðisgóðar spurningar. Stutta svarið er: Jú, ég mun að sjálfsögðu hvetja fulltrúa Miðflokksins í hv. nefnd. Hv. þingmaður nefnir Suðurfjarðaveg og það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni og það liggur bara fyrir úttekt á þeim vegi, þar sem niðurstaðan er sú að um er að ræða einn hættulegasta vegkafla Íslands. Þeir sem t.d. þekkja það að keyra stærri bifreiðar, til að mynda vöruflutningabifreiðar, það væri gaman að bjóða þeim sem halda um stjórnvölinn núna í svona nett skutl um Suðurfjarðaveg sem farþegi í flutningabíl að vetrarlagi í hálku og mæta öðrum. Þeir geta þá verið tveir fulltrúarnir, það getur annar verið í hinum bílnum, og upplifað hvernig er að mætast á Suðurfjarðavegi á tveimur flutningabílum við vetraraðstæður. Hugsanlega væri fróðlegt að fá uppgefna nokkurs konar speglatölu, þ.e. niðurstöðu um það og úttekt á því hversu mörgum vinstri speglum hefur verið fórnað á þessari leið, því eins og úttektin sýndi fram á er vegurinn mjór, vegöxlin nánast engin og vegurinn því stórhættulegur.
Varðandi spurninguna um Öxi og það fé sem stendur til að setja í hana á fyrri hluta tímabilsins þá er það það sem mætti kalla í stóra samhenginu klink. Það er í raun og veru verið að taka báðar þessar mikilvægu framkvæmdir á Austurlandi og setja þær aftast í áætlunina. Eins og ég sagði hér í umræðu um samgönguáætlun á dögunum: Ef við værum að lesta flutningabíl með þessari samgönguáætlun væri hann svo afturþungur að hann tyllti ekki í framhjólin.