framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hafnar.
Virðulegur forseti. Nú á ég ekkert roð í hv. þm. Þorgrím Sigmundsson þegar kemur að myndlíkingum á vörubílum. En það er algerlega á hreinu, og hefur komið fram í máli hv. þingmanns, að ekki er verið að horfa til forgangsatriða í öryggismálum, í öryggi vegfarenda, þegar verið er að setja vegi eins og Suðurfjarðaveg og Öxi aftast í samgönguáætlun. En mig langar þá að spyrja hv. þingmann: Nú er t.d. á hverjum degi verið að slátra um 250 tonnum af laxi á Djúpavogi, það eru um 12 trukkar á hverjum einasta degi sem keyra með lax frá Djúpavogi og 80% af því er flutt frá Austfjörðum, annaðhvort frá Reyðarfirði, og þá keyrt um Suðurfjarðaveg eða um Öxi þegar það er farið á Seyðisfjörð. Ég veit ekki hvort firðirnir eru farnir, ég þekki það svo sem ekki.
Þegar við horfum á verðmætasköpun, horfum á brýrnar og uppbygginguna, hvort hv. þingmaður sé ekki sammála því að þar fari heldur ekki saman hljóð og mynd þegar menn tala um að menn séu að byggja hér upp einhvers konar innviði eða annað út frá verðmætasköpun. Ég fæ ekki séð hvernig verðmætasköpun passar inn í þessa samgönguáætlun þegar ekki er verið að taka af flöskuhálsa þar sem eru brýr sem eru með þungatakmarkanir sem í rauninni loka inni heilu og hálfu fjórðungana og kjördæmin og vegaframkvæmdir þar sem samfélögin sem byggja verðmætasköpun eru að kalla eftir því að farið sé í vegaframkvæmdir einmitt til þess að standa undir þeirri miklu verðmætasköpun og byggja upp frekari verðmætasköpun í þessum samfélögum.