framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hafnar.
Herra forseti. Ég tek heils hugar undir það sem kom fram í máli hv. þm. Jens Garðars Helgasonar. Auðvitað er það svo, það er rétt hjá hv. þingmanni, að verkefnin eru miklu fleiri og miklu víðar í kjördæminu, eins og hefur verið nefnt, m.a. brýrnar, Jökulsá á Fjöllum o.s.frv. Við erum að tala um eiginlega hálfgert samgönguminjasafn á stórum hlutum í kjördæminu. Ég get líka nefnt vegkafla sem eru ekkert svo gamlir, sem er ekki svo langt síðan þeir voru lagaðir síðast, vegkafla milli Þelamerkur og Akureyrar. Þar er slysatíðni há og það liggur algerlega fyrir að það þarf að gera breytingar á þeim kafla, ekki síst við gatnamótin þar sem beygt er í átt til Dalvíkur og Fjallabyggðar, gatnamót sem hafa reynst og gögn sýna að eru stórhættuleg. Það breytir ekki því að til að koma umræðu um einstaka mál á dagskrá þarf stundum að kjarna þau. Ég hefði getað verið hér með þingsályktunartillögu þar sem ég tók öll þessi mál fyrir, Suðurfjarðarveg, Öxi, vegkafla milli Þelamerkur og Akureyrar, brúna við Fosshól, veginn inn Bárðardal vestari, veginn niður Útkinn. Svona gæti ég haldið upptalningunni lengi áfram. Því miður er staðan þannig að ég gæti haldið langa tölu um þá vegkafla og þau samgöngumannvirki sem eru komin algjörlega að fótum fram í kjördæminu. En ég taldi affarasælast hér að leggja fram sérstaka tillögu um Öxi vegna þess að ég hef þá trú, hv. þingmaður, að það sé varla eða í það minnsta leitun að kafla, eins stuttum vegkafla, sem muni stytta leið eins mikið, þ.e. framkvæmdir á 18 km búa til styttingu um tæpa 70 km milli þéttbýliskjarna í sama sveitarfélagi, sem var m.a. eitt af loforðunum sem lágu fyrir þeirri kvöð um sameiningu sveitarfélaganna á sínum tíma.