framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hafnar.
Virðulegur forseti. Ég tek bara heils hugar undir með hv. þingmanni í hans yfirferð hér og þakka honum gott andsvar. Það er einmitt athyglisvert, af því að hann nefnir það og við erum farnir að ræða hér almennt um þau verkefni sem eru brýn í kjördæminu, að það er verið að ýta aftar, aftur er verið að ýta núna og enn þá aftar, breikkun og tvöföldun á veginum frá Akureyri og að Þelamörk. Þetta er ofboðslega umferðarþungur og hættulegur vegarkafli og aftur er verið að ýta honum aftar. Það er ekki farið að glitta enn þá í og búið að ýta aðeins aftar mjög mikilvægu hringtorgi, nota bene ekki 800 millj. kr. hringtorgi en ekki síður mikilvægu hringtorgi þó að það sé ódýrara, sem er við gatnamótin við Skógarböðin. Það er gríðarlega mikilvægt hringtorg út frá umferðaröryggi og umferðinni sem er í kringum þennan mikla og öfluga ferðamannastað og áfangastað. Þarna eru bara tvö dæmi um verkefni sem þingmenn í Norðausturkjördæmi — og ég veit og heyri það í umræðunni um samgönguáætlun að allir þingmenn, hver og einn í sínu kjördæmi, staðkunnugir, eru að ræða ákveðin mál og hvað þeir vilja setja í forgang og á oddinn. Ég held að það sama eigi við um okkur þingmenn í Norðausturkjördæmi, að það eru ákveðin mál sem við viljum færa framar og ég held að þetta verði vinnan núna við samgönguáætlun, þ.e. að berjast fyrir ákveðnum málum sem þurfa að komast framar í forgangsröðuninni.