157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

skipun starfshóps um viðbrögð við atvikum á landamærum.

226. mál
[16:49]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ræðuna og fyrir að leggja þetta mál fram. Ég mun seint neita því að í kerfum okkar sé ekki hægt að gera betur og auka samvinnu. Sumt í þessu kom mér þó á óvart og mig langar aðeins að fjalla um það. Ég get tekið undir t.d. með vinnuaðstöðu tollvarða, bæði á Keflavíkurflugvelli og á Seyðisfirði, annað dæmi um þar sem vantar verulega upp á að hægt sé að sinna starfinu með fullnægjandi hætti og mikið sem við getum gert í því.

En mig langar aðeins að koma að samstarfinu því að nú þekki ég það persónulega og hef unnið í þessum heimi og veit að það eru starfræktar sameiginlegar greiningardeildir, ýmis verkefni eru unnin sameiginlega, kannski ekki „hands on“, fyrirgefðu, herra forseti, ekki beint á vettvangnum heldur þar fyrir ofan sem er verið að gera þessar greiningar. Við samþykktum líka lög á síðasta ári þar sem var gengið frá því að lagaumhverfið um að afhenda farþegalistana væri klárað og að það væru ekki þessi göt sem voru í því, mig minnir að 30% farþega sem komu til landsins fyrir gildistökuna hafi ekki verið skráð inn rétt. En þetta kemur aðeins á óvart varðandi samstarfið, af því að það er líka t.d. alþjóðlegt samstarf, Politi og Toll i Norden, sem er samstarf norrænu ríkjanna um allan heim milli tollslögreglu og hefur nýst okkur mjög vel í rannsóknum mála. Mig langaði kannski að fá hv. þingmann til að tala aðeins meira um þetta samstarf. Ég hef ekki verið svo heppinn að ná samtali við formann Tollvarðafélagsins en það væri ágætt að heyra aðeins meira um það samtal og þær áhyggjur sem hann hefur af því og ég er ekki að gera lítið úr þeim, alls ekki.