skipun starfshóps um viðbrögð við atvikum á landamærum.
Virðulegur forseti. Það var sláandi að eiga þennan fund með formanni Tollvarðafélagsins yfir öllum þeim glufum sem hann lýsti að væru í kerfinu, að þrátt fyrir góðan vilja til samstarfs bara dyttu mál á milli, einfaldlega vegna þess að það væri ekki skýrt hverjar lagaheimildir væru. Það væri ekki nógu mikið um samræmt verklag, m.a. vegna þess að starfsaðstæður byðu ekki upp á það. Það væri hægt að gera svo miklu, miklu betur á öllum stöðum en ekki síst á þessum stóru landamærum þar sem Isavia hafi því miður ekki verið að hjálpa til við að bæta starfsaðstæður eða auka líkur á að hlutir væru framkvæmdir með skilvirkum hætti. Ég skildi því Tollvarðafélagið ekki þannig að það væri einhver andstaða eða að menn væru ekki fullir vilja til samstarfs og væru í raun og veru að leggja sig fram um að gera allt sem þeir mögulega gætu. Hins vegar lentu menn oft í því að sá aðili sem uppgötvaði glufuna kæmi henni ekki neitt annað. Það gæti ekki átt sér stað neitt samstarf vegna þess að það vantaði lagaákvæði til þess að geta fylgt því eftir sem hugsanlega voru hjá hinum aðilanum en menn gátu ekki fært þau á milli vegna þess að það var ekki klárt hvernig það væri gert, þ.e. samstarfið þarf að vera skilgreindara, jafnvel með einhverjum lagalegum úrræðum, þannig að ég skildi það þannig að ýmislegt væri hægt að bæta.
En það sem mér fannst vera mest sláandi var hvað það væru margar glufur sem menn hefðu þó verið að reyna að benda á á liðnum misserum en menn gripu ekki. Ég held að það sé, af minni reynslu, vegna þess að framkvæmdin er hjá stofnun sem heyrir undir eitt ráðuneyti á meðan lagalega umhverfið er hjá öðrum og svo hafa menn kannski ekki borið gæfu til þess að taka þá aðila sem vita mest um þetta, fólkið sem er að vinna við þetta á gólfinu, inn í vinnuhópana. Þess vegna erum við að leggja það til.