157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[17:10]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. settum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir hans framsögu. Nú er það þannig að settur ráðherra í málaflokknum er líka 1. þm. Norðausturkjördæmis og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þeirra umsagna sem hafa komið frá Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi, frá sveitarfélaginu Múlaþingi, Fjarðabyggð, Fljótsdalshéraði, Hornafirði, jákvæðum umsögnum frá landeigendum, ferðaþjónustuaðilum á svæðinu — í mínum huga finnst mér það í rauninni ekki mjög kjarkmikið að taka eitthvað úr vernd. Rammaáætlun er bara ráðgefandi en það er okkar þingmanna að ákveða síðan að haka í miklu fleiri reiti og horfa til miklu stærri þátta og fleiri þátta heldur en rammaáætlun tekur til, í ljósi þeirrar miklu jákvæðni sem er í samfélaginu austur á fjörðum, frá sveitarfélögum og hagaðilum, landeigendum og öðrum, gagnvart þessu verkefni, sem kemur ekkert á óvart. Það eru alltaf sömu umsagnirnar frá Landvernd og öðrum náttúruverndarsamtökum. Ég man ekki eftir að hafa séð eina einustu virkjunarframkvæmd eða nokkuð þar sem kemur jákvæð umsögn úr þeirri átt, þannig að það er ekkert nýtt. En þegar það kemur svona sterkur þungi úr samfélaginu á Austurlandi — ég sit náttúrlega í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem þetta verður tekið fyrir — þá langar mig að spyrja hæstv. settan ráðherra hvort hann, sem líka 1. þm. Norðausturkjördæmis, myndi ekki styðja það ef nefndin tæki það skref að setja Hamarsvirkjun í nýtingarflokk.