breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. settum ráðherra fyrir sitt svar. Það er þannig að það þarf að tryggja orkuöryggi heimila í sérstakri löggjöf. Það átti að vera fyrsta mál hæstv. ráðherra málaflokksins, hefur dregist og ég ítreka að við verðum að geta sett þessa hluti fram í réttri röð því að almenningur á Íslandi treystir því að það sem kemur fram í greinargerð frumvarpa sé með þeim hætti að fólk geti treyst því að þetta tryggi orkuöryggi heimila og nýtist því í heimabyggð.
Við erum að sjá ólíka einkaaðila þegar kemur að nýtingu á vatnsafli. Við erum að sjá að það er ekki búið að útfæra þar auðlindagjöld. Við vitum að þessi virkjunarleyfi eru ótímabundin. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Er það í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar og kannski sérstaklega Samfylkingarinnar að (Forseti hringir.) útdeila virkjunarleyfum ótímabundið til einkaaðila án þess að hafa útfært auðlindaumgjörð?