157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[17:22]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það var talað töluvert um auðlindamálin á síðasta þingi og hæstv. ríkisstjórn hefur verið mjög einbeitt í að búa til heildarlöggjöf um auðlindanýtingu, sérstaklega á endanlegum auðlindum. Mér hefur ekki fundist sá flokkur sem hv. þingmaður tilheyrir hafa staðið fremstur í flokki til þess að fagna slíkum hugmyndum. Við höfum alveg verið skýr á því að við munum setja okkur stefnu og knýja fram löggjöf um auðlindanýtingu í orkumálum. Af því að það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að þegar við förum að nýta okkur vindinn og jafnvel enn draumkenndari orkukosti er mjög líklegt að mikið af þeim verkefnum verði í öðru formi en þessar stóru vatnsaflsvirkjanir sem fyrst og fremst hafa verið reistar af Landsvirkjun.