breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Ég byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir snaggaralega framsögu og hér var ekkert ofsagt frekar en venjulega þegar ráðherrann tekur til máls. Mig langar til þess, af því að ráðherrann fékk að mínu mati nokkuð erfitt verkefni, að upplýsa hann um að ég var hluti af þeirri verkefnisstjórn sem um þessa virkjunarkosti fjallaði. Ég verð að segja að maður áttar sig á því að maður hefur kannski ekki miklu öðru fram að tefla heldur en bara nákvæmlega því sem stendur í lögunum og lögin eru dálítið miðuð að því að það séu skipaðir faghópar á ákveðnum sviðum, það tekur kannski ekki beinlínis til þess hvernig orkuástandið er í landinu eða hvort það er veruleg þörf eða eftirspurn eftir raforku o.s.frv. Ég held því að það megi segja að verkefnisstjórnin muni skila að einhverju leyti dálítið fyrirsjáanlegum niðurstöðum. Ég tel að rammaáætlun sé gríðarlega mikilvæg, sérstaklega vegna þess að í upphafi var ekki mikið til af rannsóknargögnum en það hefur breyst verulega.
Svo að ég víki mér nú að spurningu til ráðherrans: Telur ráðherrann að það sé nægilega búið um það í lögum að ráðherrann hafi tæki til að tefla einhverju fram gegn niðurstöðum verkefnisstjórnarinnar og myndi þá byggja t.d. á spám um raforkuþörf eða upplýsingum um náttúruvá, t.d. til þess að dreifa orkukostum mismunandi um landið? Og ég spyr hvort hann sé sammála mér í því að það sé ekki skynsamlegt að nota þá virkjunarkosti sem við erum að taka ákvörðun um í dag (Forseti hringir.) og eru jafnvel stórir, að það sé ekki farið í að vernda þá heldur verði þeir í rauninni settir í biðflokk á meðan við erum að ráða okkar ráðum varðandi t.d. orkuöflunarþörf.