157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[17:26]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér var ekki kunnugt um að hv. þingmaður hefði setið í faghópi en það er alveg rétt sem hann segir að þeir eru lögbundnir og ég held að þeir séu nauðsynlegir vegna þess, eins og ég sagði áðan, að það gildir um svona framkvæmdir, ef eitthvað, að við þurfum að stíga varlega til jarðar og horfa á mál frá öllum hliðum og vanda ferlið og reyna að gera það eins hlutlægt og hægt er. Ég tel að ráðherra hafi nægilegt svigrúm til þess að horfa á hluti eins og orkuþörf og annað slíkt, eins og hv. þingmaður kom inn á, einmitt með því að gera það sem ég er að gera, að leggja fyrir þingið breytingar á tillögu verkefnishópsins og það er ég að gera. Mér finnst það eðlilegt skref að fara með kost úr vernd í biðflokk frekar en í nýtingarflokkinn beint eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason, fannst mér, lagði til, vegna þess að það er yfirlýsing til þingsins um að ráðherra telji að það þurfi að skoða hlutina betur. Ég treysti þinginu mjög vel til þess að fjalla um það á vandaðan hátt, enda á viðkomandi nefnd eftir að fá umsagnir og gesti til sín. Ég held því að þetta sé bara í nægilega skýrum og góðum farvegi eins og það er. Ég veit ekki hvað ætti að vera meira. Ef hv. þingmaður er að kalla eftir því að ráðherrar geti einhliða breytt þessu þá held ég að það væri ekki skynsamlegt og dæmin sýna víða um heim um alls konar málefni að slíkt er ekki gott vald að sitja uppi með.