breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðileg orðaskipti. Ég held að það skipti máli að samhliða þessu er núna til umfjöllunar mál er varðar orkuöflunarstefnu, að það sé skilgreint. En ráðherra málaflokksins og ráðuneytið hefur verið skýrt á því að það sé viðurkennt að þingið og lýðræðiskjörnir fulltrúar þurfi að horfa á fleiri atriði en verkefnisstjórn og faghópar hverju sinni. Ég held hins vegar að það skipti máli að stytta okkur ekki leið. Núna bíður okkar ítarleg og vönduð umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar og mín reynsla hér síðastliðin níu ár gefur mér ekki neitt tilefni til annars en að trúa því að hún verði vönduð og leiði til málefnalegrar niðurstöðu.