157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[17:31]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Mig langar rétt að bregðast við ummælum hæstv. setts ráðherra í þessu máli þegar hann fór að tala um möguleg auðlindagjöld af vindorku. Góðir vinstri menn láta nú aldrei góða skattheimtu fram hjá sér fara og meira að segja er íslenskur vindur orðinn takmörkuð auðlind og þá vitum við hvers er að vænta þegar meira að segja vinstri menn á Íslandi eru farnir að líta á vind sem takmarkaða auðlind. Ég held að þorri landsmanna myndi ekki taka undir það, reyndar kannski Austfirðingar sem átta sig á að vindur er mjög takmörkuð og sjaldséð auðlind.

Hér erum við að ræða rammaáætlun og eins og kom hér fram áðan fagna ég því að hæstv. ráðherra, settur ráðherra í málinu, svona einhvern veginn taldi sig hafa — fór mörgum orðum um það en hefur trú á þingræðinu og sagðist ekki myndu setja sig upp á móti því sem þingmaður Norðausturkjördæmis og bara sem ráðherra í hæstv. ríkisstjórn ef málið færi í nýtingarflokk. Mér finnst það gríðarlega mikilvægt inn í umræðuna að settur ráðherra í málaflokknum skuli lýsa yfir stuðningi og velvild gagnvart því að málið taki vonandi breytingum í meðferð umhverfis- og samgöngunefndar og muni þá greiða með því atkvæði og samþykkja það. Það finnst mér gríðarlega mikilvægt inn í þessa umræðu og verður að halda því til haga.

Í þingsályktunartillögunni er m.a. talað um, með leyfi forseta, stendur hér m.a.:

„Framkvæmdir við stór og hagkvæm verkefni hafa tafist verulega og óvissa ríkir um marga virkjunarkosti vegna jarðhræringa. Í ljósi þessa er sérstaklega brýnt að forgangsraða skoðun og frekari rannsóknum á virkjunum sem staðsettar eru utan helstu umbrota- og hamfarasvæða, þar sem þær geta tryggt öruggt framboð raforku óháð náttúruvá á öðrum svæðum. Í þessu sambandi er vert að nefna að virkjanakostir á Austurlandi eins og Hamarsvirkjun eru utan allra helstu umbrota- og hamfarasvæða Íslands og bjóða því upp á möguleika til að tryggja betur langtímaöryggi raforkuframleiðslu verði hamfarir annars staðar á landinu.“

Þetta er einn aðallykilpunkturinn. Fyrir utan þann mikla og jákvæða vilja í samfélaginu austur á fjörðum, bæði á sveitarstjórnarstigi, í atvinnulífinu, frá landeigendum og öðrum, til að þessi virkjun verði reist þá er það þetta þjóðhagslega, öryggislega náttúruváratriði sem nota bene er ekki tekið fyrir þegar verið er að ræða þetta inni í rammaáætlun. Þegar verið er að ræða þetta inni í rammaáætlun er þetta ekki tekið fyrir sem einn af kostunum til þess að vega og meta hvort þetta sé fýsilegur kostur eða ekki. Það er okkar að leggja það lóð á vogarskálarnar og sjá til hvort það breyti skálunum. Það er það sem er mikilvægt í þessu. Það er hlutverk okkar að horfa til þátta eins og þessa sem rammaáætlun gerir ekki og ég sé enga ástæðu til að þessi virkjunarkostur, eftir að hafa verið átta ár í meðferð rammaáætlunar, fari núna í biðflokk. Málið er mjög skýrt. Þetta liggur alveg skýrt fyrir.

Mig langar að lesa hér aðeins meira, með leyfi forseta:

„Í umsögn Arctic Hydro hf., framkvæmdaraðila Hamarsvirkjunar, kemur fram að forsvarsmenn Hamarsvirkjunar telji að verkefnið eigi heima í nýtingarflokki. Í umsögnum bæjarráðs Fjarðabyggðar og bæjarráðs Múlaþings er lagst gegn því að virkjunarkosturinn flokkist í verndarflokk og áhersla lögð á mikilvægi hans fyrir orkuöryggi landsmanna og bætt aðgengi að orku á Austurlandi sem er grundvallarforsenda áframhaldandi verðmætasköpunar og uppbyggingar svæðisins.“

Áfram segir:

„Í umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi er tekið undir umsagnir Fjarðabyggðar og Múlaþings. Þá er vakin athygli á ósamræmi sem virðist vera í mati faghópsins milli virkjunarkosta á landinu sem dregur Hamarsvirkjun niður en ekki aðrar virkjanir. Þá telur sambandið furðu lítið horft til orkuöryggis og þarfar atvinnulífs á Austurlandi fyrir trygga orku auk þess sem lítið sé gert úr ávinningi til framtíðar þegar lagt sé mat á efnahagslegan ávinning og þá sérstaklega í ljósi þess að Hamarsvirkjun sé mikilvæg breyta í þeirri atvinnuuppbyggingu sem unnið hafi verið að á undanförnum árum og snúi m.a. að úrvinnslu sjávarafurða, fiskeldi og grænum iðngörðum á Reyðarfirði.“

Samtök iðnaðarins, Samorka og fleiri taka undir. Eins og hæstv. settur ráðherra í málinu nefndi hér réttilega áðan kemur líka fram, með leyfi forseta:

„Vakin er athygli á því að tillaga verkefnisstjórnar um flokkun virkjunarkostsins í verndarflokk er hvorki bindandi fyrir ráðherra né Alþingi og þýðir ekki að virkjunarkosturinn sé nú þegar flokkaður í þann flokk.“

Það er það sem er svo oft verið að rugla með almennt í umræðunni, að komi einhver tillaga frá rammaáætlun sé það einhver salómonsdómur um það hvert tillagan eigi að fara. Verkefnisstjórn rammaáætlunar er bara með nokkur atriði sem hún á að skoða. Síðan eru fleiri þættir, efnahagslegir þættir, náttúruvá, þjóðaröryggi og alls kyns þættir sem ráða því og geta haft mikil áhrif á það hvort kosturinn verður fýsilegri eða ekki, sem er okkar hlutverk að meta. Það er akkúrat það sem við erum að gera hér og í mínum huga, virðulegur forseti, er Hamarsvirkjun lýsandi dæmi um virkjunarkost sem á að fara í nýtingu. Þetta er 60 MW virkjun sem er fyrir utan náttúruvársvæðið. Þetta er tiltölulega stór virkjunarkostur sem er fyrir utan t.d. Þjórsársvæðið þar sem við erum nú þegar að byggja upp flestar af okkar stærstu virkjunum. 35%, held ég að ég fari rétt með, af raforkuframleiðslu Íslands eru á Þjórsársvæðinu. Vonandi gerist það aldrei en ímyndið ykkur hvað myndi gerast ef þær virkjanir færu allar út og við hefðum ekki haft þá framsýni að fara í orkuuppbyggingu á orkukostum eins og Hamarsvirkjun, ég tala nú ekki um þann stóra virkjunarkost sem Héraðsvötn eru, og orkukostum líkt og Kárahnjúkum sem standa fyrir utan þessi svæði. Þetta er þjóðhagslega mikilvægt mál út frá orkuöryggi og efnahagslegum ávinningi, ekki bara í þessu tilfelli með Hamarsvirkjun, fyrir samfélagið á Austfjörðum eða í norðaustri heldur fyrir landið allt.

Virðulegur forseti. Svo koma hér inn umsagnir frá Landvernd, frá Vinstri grænum í Múlaþingi sem eru í minni hluta þar, Náttúruverndarsamtökum Íslands og fleiri álíka. Ég man ekki eftir því að hafa nokkurn tíma séð jákvæða umsögn hvað varðar orkuuppbyggingu, virkjanir eða dreifikerfi raforku frá Landvernd t.d. Ég man bara ekki eftir að hafa séð jákvæða umsögn frá þeim samtökum þannig að það er ekkert nýtt undir sólinni þó að Landvernd t.d. leggist gegn þessu máli. Mér finnst það vega miklu léttar en aðrar umsagnir sem koma frá sveitarfélögum, landeigendum og fleirum. Það bara er miklu léttvægara. Landvernd hefur aldrei sent inn jákvæða umsögn, ekki sem ég man eftir og ég kalla þá eftir því ef einhver man eftir jákvæðum umsögnum. (Forseti hringir.) En ég man ekki eftir því að sömu samtök hefðu t.d. beitt sér gegn því þegar reistur var 11 MW olíuketill í Bolungarvík án þess að nokkur tæki eftir (Forseti hringir.) af því að það þurfti ekki að fara í umhverfismat eða rammaáætlun.