157. löggjafarþing — 59. fundur,  27. jan. 2026.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

307. mál
[17:41]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir ágæta ræðu. Ég ætlaði svo sem ekki að gera að umtalsefni neina tiltekna virkjunarkosti þó að þingmaðurinn hafi verið að víkja að því heldur bara prinsippið um rammaáætlun og hvort hún eigi yfirhöfuð að liggja til grundvallar ákvörðunum Alþingis. Ég ætla að taka undir með settum ráðherra í þessu máli um að rök verði að ráða og rökin liggja miklu betur fyrir nú en áður varðandi einstaka virkjunarkosti vegna þess að það er unnið kerfisbundið og skipulega að rannsóknum og athugunum á þeim virkjunarkostum, hvaða verðmæti eru í húfi, hvaða samfélagslegi ávinningur hugsanlega vegur þar á móti o.s.frv. Þetta er gríðarleg framför frá því sem áður var, alveg gríðarleg framför.

Þótt ég ætli að standa við það að ræða ekki einstaka virkjunarkosti og hafi verið býsna stutt á þingi, eins og hv. þingmaður sjálfur, get ég ekki varist þeirri hugsun eftir að hafa hlustað á nokkrar ræður frá hv. þingmanni að ég muni ekki eftir að í nokkru einasta tilviki hafi hann talið að kostir sem væri verið að gera tillögu um að setja í vernd eða bið ættu heima annars staðar en í nýtingu. Getur verið að þingmaðurinn sé í grundvallaratriðum tilbúinn að horfa fram hjá rökunum sem komu fram í kortlagningu rammaáætlunar vegna þeirrar hjartans sannfæringar að alla þá kosti sem hægt er að tína til og eru til umfjöllunar eigi að nýta?