breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Ég held að ég og hv. þingmaður gætum ábyggilega verið hér í allan dag að ræða þessi mál af því að ég held að við séum stundum, oft og tíðum, ósammála í þessum efnum.
Hvað hef ég sem þingmaður verið að ræða um? Ég hef t.d. tekið fyrir Héraðsvötn sem eru einn mikilvægasti orkukostur okkar í dag utan náttúruvár, utan skilgreinda náttúruvársvæðisins. Við erum að færa eggin, ekki bara inn á Þjórsársvæðið heldur dreifa orkueggjunum víðar. Ég hef talað um Kjalölduveitu sem er einn hagkvæmasti orkukostur Landsvirkjunar og núna er ég að tala um Hamarsvirkjun. Það má vel vera að ég hafi talað fyrir — ég hef náttúrlega talað fyrir öllum þeim orkukostum sem eru núna inni í ramma 4, ef ég man rétt, þessum fimm orkukostum, Skrokköldu, Holtavirkjun, Urriðafossi, Kjalöldu og Héraðsvötnum. Ég er á þeirri skoðun að þetta eigi allt að fara í nýtingu. Þetta eru 3.514 gígavattstundir. Núna á teikniborðinu hjá Landsvirkjun er stækkun á Sigöldu, Hvammsvirkjun, Þeistareykir og kannski einhver einn kostur — jú, og svo lundirnir tveir, Vaðölduver og Blöndulundur. Það eru samtals 2.110 gígavattstundir. Þetta gera samtals 5.500 gígavattstundir. Samkvæmt orkuspá Landsnets þurfum við að bæta við 5.000 gígavattstundum fyrir 2035 og það er án þess að hér komi nokkrir stórir orkunotendur. Þetta er bara það sem orkuspá Landsnets segir til um og þarna eru rúmlega 5.000 gígavattstundir. Þá finn ég til ábyrgðar á að við byggjum upp græna orkukosti og bestu og hagkvæmustu orkukostirnir eru vatnsaflsorkukostirnir. Þá finn ég til ábyrgðar sem þingmaður að tala fyrir grænni orkuuppbyggingu á Íslandi til þess að við lendum ekki í því eftir nokkur ár að vera algerlega komin í þrot í orkumálum.